Eiríkur Björn verður bæjarstjóri á Akureyri 9. júlí 2010 11:46 Eiríkur Björn Björgvinsson.
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar hefur ákveðið að ráða Eirík Björn Björgvinsson sem bæjarstjóra á Akureyri til næstu fjögurra ára. Gengið verður frá formlegum ráðningarsamningi síðar í þessum mánuði og innhald hans kynnt í framhaldi af því. Eiríkur Björn mun hefja störf þann 15. ágúst næstkomandi að því er fram kemur í tilkynningu frá bænum. Eiríkur Björn er fæddur árið 1966 og lauk íþróttakennaraprófi á grunn- og framhaldsskólastigi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1990 og diplómu frá Íþróttaháskólanum í Köln árið 1994 auk diplómaprófs í stjórnun frá Kennaraháskóla Íslands árið 2000. Hann hefur starfað sem æskulýðs- tómstunda og íþróttafulltrúi á Egilsstöðum og á Akureyri en frá árinu 2002 gegndi hann stööu bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði. Alls sóttu 64 um starf bæjarstjóra á Akureyri en 11 drógu umsókn sína til baka þegar ljóst var að nöfn umsækjenda yrðu birt. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fyrirtækið valdi 20 einstaklinga úr hópi 53ja umsækjenda til nánari skoðunar og loks 3 úr þeim hópi sem bæjarstjóraefni. Að auki fékk L-listinn 5 manna óháða ráðgjafarnefnd sér til fulltingis í ráðningarferlinu. Á endanum stóð valið á milli sömu þriggja umsækjenda og Capacent mælti með og var Eiríkur Björn valinn úr þeim hópi, sem fyrr segir. Bæjarráð Akureyrar mun fjalla um ráðningu nýs bæjarstjóra og staðfesta hana formlega. Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, segist mjög ánægður með þessa niðurstöðu. „Ég tel að við höfum ráðið mjög hæfan mann til að gegna bæjarstjórastarfinu næstu fjögur árin og hann kemur úr stórum hópi mjög frambærilegra umsækjenda. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem sóttu um starfið. Jafnframt óska ég Akureyringum til hamingju með nýja bæjarstjórann og býð Eirík Björn og fjölskyldu velkomin í bæinn aftur," segir hann.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Fleiri fréttir Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Sjá meira