Innlent

Tekist á um frávisunarkröfu í máli níumenninganna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragnar Aðalsteinsson vill að málinu verði vísað frá vegna vanhæfis Láru V. Júlíusdóttur. Mynd/ GVA.
Ragnar Aðalsteinsson vill að málinu verði vísað frá vegna vanhæfis Láru V. Júlíusdóttur. Mynd/ GVA.
Tekist verður á um það í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun hvort máli Ríkissaksóknara gegn níumenningunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi skuli vísað frá dómi.

Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af þeim níu sem ákærðir eru í málinu, hefur sagt að Lára V. Júlíusdóttir sé vanhæf sem settur saksóknari í málinu vegna þess að hún er kjörin fulltrúi Alþingis í bankaráði Seðlabanka Íslands. Lára er formaður bankaráðsins. Með því sé Lára sérstakur trúnaðarmaður Alþingis, sem sé bæði kærandi málsins og jafnframt hinn meinti brotaþoli.

Ragnar Aðalsteinsson krafðist þess jafnframt að dómarinn í málinu víki vegna þess að dómarinn óskaði eftir því að lögregla væri viðstödd réttarhöldin. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur höfnuðu þeirri kröfu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×