Suður-afríska suðið í íslenska boltann 22. júní 2010 08:00 Lúðrarnir frægu eru komnir til landsins og byrjaðir að hljóma á fótboltaleikjum. Fréttablaðið/AFP photo
Vuvuzela-lúðrarnir sem hafa orðið heimsfrægir á HM í Suður-Afríku eru nú komnir til landsins. Á fótboltaleikjum helgarinnar sáust margir skarta þessum eins metra langa lúðri úr plasti en þeir voru til sölu í sölubásum í miðbænum á 17. júní. Mikil umræða hefur átt sér stað um hvort banna eigi hljóðfærið á leikjum heimsmeistaramótsins en leikmenn, þjálfarar og áhorfendur hafa kvartað yfir að heyra ekkert annað en suðið úr lúðrunum. En hvert er viðhorf íslenska knattspyrnusambandsins (KSÍ) til lúðranna og suðsins sem þeim fylgir? „Það þarf víst svo mikinn kraft til að blása og fá hljóð úr þessum lúðrum að ég er ekki viss um að íslendingar hafi þann kraft í sér,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, og hlær. Hann hefur orðið var við þetta en vill ekki meina að nein umræða um bann á hljóðfærinu hafi átt sér stað innan KSÍ. „Það er öll notkun hljóðfæra á fótboltaleikjum leyfileg og þetta er svo nýbyrjað hér að við höfum ekkert rætt um það ennþá.“ Geir segir að engin afstaða verði tekin til vuvuzela-lúðrana fyrr en meiri reynsla er komin á þá. „Persónulega finnst mér þetta suð alveg hræðilega leiðinlegt og mundi frekar kjósa að hlusta á eitthvað annað.“ - áp
Mest lesið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Lífið samstarf Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Lífið Fleiri fréttir Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Sjá meira