Gagnrýna lífsýnatöku úr Bobby Fischer Símon Birgisson skrifar 19. ágúst 2010 12:18 Bobby Fischer var jarðaður í Laugdælakirkjugarði.
Gagnrýnt er hvernig staðið var að lífsýnatöku úr stórmeistaranum Bobby Fischer. Rannsókn á lífsýnunum leiddi í ljós að stúlka sem taldi sig vera dóttir hans, er honum óskyld. Lögmenn hennar munnhöggvast í erlendum fjölmiðlum. Samuel Estito, lögmaður Fillipísku konunnar Marylin Young, sem hélt því fram að Bobby Fischer væri faðir dóttur hennar, gagnrýnir hvernig staðið var að uppgreftrinum á líki Bobby Fischer. Hann segir Þórð Bogason, íslenskan lögmann konunnar, hafa lýst því yfir of snemma að ekki væri grundvöllur til að halda faðernismálinu til streitu og gefur í skyn að Garðar Sverrisson, návinur Bobby Fischer, gæti hafa átt við líkið til að koma í veg fyrir að niðurstaða næðist í faðernismálinu. New York Times fjallar um málið á vef sínum í dag. Þar er vitnað í tölvupósta frá Þórði Bogasyni þar sem Þórður lýsir uppgreftrinum í þaula. Að sögn Þórðar fór uppgröfturinn fram snemma morguns, kistan var opnuð í gröfinni og tjald reist til að hylja sýn. Viðstaddir voru fulltrúar allra þeirra sem gera kröfu í dánarbú Bobby Fischer. Sérfræðingar tóku sjö vefjarsýni úr líkama Bobby Fischer og kistunni var lokað aftur og gröfin blessuð af presti. Samuel Estito gagnrýnir uppgröftinn. Hann segir að kistan hefði átt að vera færð upp á yfirborðið til að sannreyna að líkið væri örugglega af hinum látna stórmeistara. Þá bendir hann á að eignin sem kirkjugarðurinn tilheytri sé í eigu Garðar Sverrissonar, náins vin Miyoko Watai. Garðar hafi haft aðgengi að kirkjugarðinum og „hver veit hvað gæti hafa gerst milli jarðarfararinnar og uppgraftarins." Þessum ásökunum svarar Þórður Bogason á þann veg að það sé enginn möguleiki að Garðar Sverrisson eða einhver annar gætu hafa átt við líkið og slíkar ásakanir jaðri við að vera meiðyrði.
Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fleiri fréttir Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Sjá meira