Kringlan skráir bílnúmer starfsfólks Erla Hlynsdóttir skrifar 19. október 2010 11:57
Forsvarsmenn Kringlunnar hafa sent öllum verslunareigendum í húsinu bréf þar sem óskað er eftir bílnúmerum starfsfólks. Skráning bílnúmeranna er liður í eftirliti með bílastæðum Kringlunnar, bæði vegna öryggis sem og til að tryggja að starfsfólk leggi ekki í bestu stæðin sem ætluð eru viðskiptavinum. Kveðið er á um það í samskiptareglum hússins að rekstraraðilar eigi að koma lista yfir bílnúmer starfsmanna til skila. „Hvert bílastæði skilar mörg þúsund krónum inn í húsið á hverjum klukkutíma," segir í bréfinu. Þar er einnig óskað eftir upplýsingum um hvenær vaktaskipti eiga sér stað.Óframkvæmanlegt Hjá Smáralind var gerð tilraun til að skrá niður bílnúmer starfsfólks en það reyndist erfitt í framkvæmd og því ekki lengur gerð krafa um að þeim upplýsingum sé skilað inn til rekstarfélagsins. Farsælla reyndist að fara þá leið að hafa vaktmann sem fylgist með því að starfsfólk leggi fjarri inngöngum, sér í lagi þegar jólavertíðin nálgast. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjór Kringlunnar, segir að frá því verslunarmiðstöðin var fyrst opnuð hafi verið haft sérstakt eftirlit með bílum starfsfólks. Hann segir hvert stæði vera verðmætt og það sé því tap fyrir bæði rekstraraðila Kringlunnar og verslunareigendur þar ef bestu stæðin eru teppt af starfsfólki.Flestir sýna skilning „Auðvitað vill starfsfólkið leggja hér upp við hús," segir Sigurjón. Hann kannast við kvartanir frá einstaka starfsmanni en flestir sýna því skilning að viðskiptavinir ganga fyrir í bílastæði nálægt inngöngum verslunarmiðstöðvarinnar. Kristinn Jóhannesson, rekstrarstjóri Smáralindar, segir það einnig almenna reglu þar að starfsfólk leggur bílum sínum i útjaðri bílastæðanna. Hjá Smáralindinni var gerð tilraun til að halda skrá yfir bílnúmer starfsfólks til að fylgjast með hvort starfsfólk leggi nálægt inngöngum. „Það var hins vegar óframkvæmanlegt. Bara það eitt að fá númerin var erfitt. Síðan er oft mismunandi á hvaða bíl fólk kemur á til vinnu," segir hann. Við Smáralindina eru líka öllu fleiri bílastæði en við Kringluna. Kristinn segir að loks hafi verið tekin ákvörðun um að hafa vaktmann á stæðinu á morgnana þegar búist er við mikilli umferð í Smáralindina. Sótt á heitum bíl Kristinn hefur heldur ekki farið varhluta af því að sumir starfsmenn eru ósáttir við þetta fyrirkomulag. „Það eru alltaf einhverjar óánægjuraddir en þær eru mjög fáar," segir Kristinn. Þegar jólin nálgast er bílastæðum við Kringluna síðan hreinlega lokað fyrir starfsfólki. Þá er því beint að Framheimilinu sem er í næsta nágrenni og lætur Kringlan sækja starfsfólkið þangað. ‚Mörgum finnst nú bara mjög notalegt að vera sóttur á heitum bíl og fá far alveg upp að dyrum," segir Sigurjón. Hann tekur fram að það eigi ekki eiga að koma neinum á óvart þegar óskað er eftir bílnúmerum starfsfólks þar sem verslunareigendum er kynnt þetta atriði áður en þeir skrifa undir leigusamning. Það er síðan í höndum þeirra að kynna málið fyrir starfsfólki sínu. Að sögn Kristins hefur Smáralindin boðið starfsfólki upp á akstur frá útjöðrum bílastæðanna og að verslunum þegar veður er sem verst.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira