Fréttaskýring: Almenningur orðið fyrir búsifjum 2. júlí 2010 04:15 Matarverð hefur lækkað.
Til að fá marktækan samanburð á verði milli landa er nauðsynlegt að hafa í huga kaupmátt íbúa þeirra landa sem verið er að bera saman. Í flestum ríkja þriðja heimsins eru matvæli þannig ódýrari en þekkist á Vesturlöndum. Það þýðir hins vegar ekki að íbúar þriðja heims ríkja séu betur settir því sem hlutfall af launum þeirra eru matvæli dýrari en Vesturlandabúar eiga að venjast. Niðurstöður úr evrópskri könnun, sem gerð var vorið 2009, á verði matvæla, áfengis og tóbaks í ýmsum löndum Evrópu voru birtar í vikunni. Samkvæmt henni var verðlag matvæla fjórum prósentum hærra hér á landi en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. Um er að ræða mikla breytingu frá sambærilegri könnun sem gerð var árið 2006 en þá var verðlag hæst á Íslandi eða 61 prósenti hærra en að meðaltali í Evrópusambandinu. En hvað þýðir þetta? Borga Íslendingar minna fyrir matvæli en áður eða eru aðrar ástæður þarna að baki? Skýringarnar á þessari breytingu er aðallega að finna í gengisfalli krónunnar en frá 1. apríl 2006 til 1. apríl 2010 hækkaði gengisvísitala krónunnar um 91 prósent sem þýðir að virði hverrar krónu fór nærri því að helmingast. Þessi gengisveiking hefur valdið því að fyrir íslenskar krónur fæst þeim mun minna af vörum erlendis. Samanburðurinn sem birtist í evrópsku könnuninni er sá að borið er saman verð á ákveðinni körfu af vörum í löndunum í bandarískum dollurum. Árið 2006 þurfti 161 dollara til að kaupa vörur á Íslandi sem kostuðu 100 dollara að meðaltali í Evrópu en nú þarf einungis 104 dollara. Því er einungis um verðlækkun að ræða frá sjónarhóli útlendinga. Lægra verð hér en áður borið saman við Evrópulönd skýrist því af því að verðmæti íslensku krónunnar hefur hrunið. Um leið hafa laun Íslendinga lækkað jafn mikið, og í sumum tilfellum meira, í dollurum talið svo hér er síður en svo um kjarabót að ræða fyrir Íslendinga. Á sama tímabili hefur kaupmáttur launa innanlands, skilgreindur sem laun umfram verðbólgu, dregist saman um 9,1 prósent. Þetta þýðir að fyrir laun í dag sem eru sambærileg við laun í apríl 2006 fæst 9,1 prósenti minna af vörum. Auk þess hafa skattahækkanir valdið því að fólk hefur minna umleikis en þá, þó launin séu sambærileg. Þó matvælaverð sé svipað og í Evrópu þá verja Íslendingar hlutfallslega mun hærri hluta af tekjum sínum í matvæli rétt eins og áður.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira