Mega veita eftirför en hafa ekki hlotið þjálfun 28. september 2010 15:19
Tollgæslumönnum er heimilt að veita mönnum eftirför, þrátt fyrir að hafa ekki hlotið sérstaka þjálfun í forgangsakstri. Harður árekstur varð í morgun þegar Jeppi, sem tollayfirvöld eltu lenti framan á Strætisvagni. Áreksturinn varð á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar laust fyrir klukkan átta í morgun. Höggið var svo mikið að jeppi smyglarans er gjörónýtur, og strætisvagninn þeyttist mikið skemmdur á stórann ljósastaur og felldi hann. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum. Eftirförin hófst við Sundahöfn í Reykjavík, en ökumaður jeppans er skipverji á vöruflutningaskipi Eimskips. Tollverðir reyndu ítrekað að stöðva bifreiðina, en án árangurs. Því var ákveðið að hefja eftirför en stutt er síðan reynt var að smygla fíkniefnum í gegnum tollahliðið. Tollgæslumönnum er heimilt að veita eftirför sem þessa samkvæmt tollalögum. En þrátt fyrir það hafa þeir ekki hlotið neina sérstaka þjálfun í forgansakstri líkt og lögreglumenn. Embætti tollstjóra vildi ekki veita fréttastofu viðtal í dag vegna málsins. Forstöðumaður tollasviðs sagði þó að embættið myndi forðast það í lengstu lög að veita mönnum eftirför. Í morgun hafi ekki verið vitað hvað væri í bílnum þegar ákvörðunin var tekin. Háttsemi mannsins hafi þótt með öllu óviðuanandi og því hefði verið ákveðið að veita honum eftirför. Hún sagði að skoða mætti, í ljósi atburða dagsins, hvort tollgæslumenn þyrftu slíka þjálfun. Við leit í bílnum kom í ljós að einungis var um áfengi og tóbak að ræða, en ekkert fæst upp gefið um magn. Lögregla tók skýrslu af ökumanninum vegna málsins, en honum var sleppt um miðjan dag í dag.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Sjá meira