Þyrluþjónusta Landhelgisgæslunnar verði efld 5. febrúar 2010 14:09 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna telja brýnt að efla þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar. Nýlegt atvik undirstriki að niðurskurður á rekstrarfé Gæslunnar ógni öryggi sjómanna á hafi úti. Þá varð Landhelgigæslan að synja beiðni frá íslenskum togara sem óskaði eftir þyrluhjálp vegna veikinda skipverja. Ekki var hægt að verða við beiðninni, þar sem skipið var um 70 sjómílur frá landi og aðeins ein þyrluvakt til taks. Við slíkar aðstæður er þyrla ekki send lengra en 20 mílur á haf út. Í áskorun félaganna segir að Landhelgisgæslunni sé ætlað að sinna mjög víðfeðmu hafsvæði og hún gegni mikilvægu öryggishlutverki fyrir íslenska sjómenn. Upp geti komið tilvik eða aðstæður, þar sem tími til björgunar sé svo naumur að þyrla sé eina tækið sem sjómenn geta treyst á. „Þótt þrengingar séu í ríkisrekstri er það dýrkeyptur sparnaður að vega að ákveðnum grunnþáttum á borð við þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar og þar með öryggi sjómanna á hafi úti. Við skorum því á stjórnvöld að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum," segir í áskoruninni.
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Innlent Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Erlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Innlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Sjá meira