Innlent

Búið að aftengja duflið - sprengjan var heil

Valur Grettisson skrifar
Tundurdufl. Myndin er úr safni.
Tundurdufl. Myndin er úr safni.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru búnir að aftengja tundurdufl sem festist í veiðarfærum togbátsins Skinneyjar snemma í morgun. Duflið reyndist vera 225 kíló. Hvelletta og forsprengja voru enn til staðar en óvíst hvort raunveruleg hætta hafi verið til staðar.

Samkvæmt upplýsingum frá landhelgisgæslunni er þó alltaf gert ráð fyrir hinu versta og það tekið mjög alvarlega þegar tundurdufl finnast. Ekki er útilokað að gamall búnaður springi.

Skipstjóri Skinneyjar, Margeir Guðmundsson, sagði í viðtali við Vísi í hádeginu að skipverjar hefðu tekið óvænta fundinum með ró. Duflið var híft upp á þilfar skipsins og þar var það aftengt.

Tundurduflið festist í veiðarfærunum sunnan við Snæfellsnes. Þeir sigldu svo með það að Rifi á Snæfellsnesi. Skipið er komið að landi.

Næsta skref er að sprengja forsprengjuna og brenna sprengiefnið sjálft.


Tengdar fréttir

Pollrólegir með tundurdufl á þilfarinu

„Við erum pollrólegir,“ segir Margeir Gumundsson, skipstjóri á togbátnum Skinney en skipverjar fengu tundurdufl í veiðarfærin en þeir voru við humarveiðar í Jökuldjúpi sunnan við Snæfellsjökul.

Sprengjusveitin komin um borð í Skinney

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru nú komnir um borð í togbátinn Skinney sem fékk tundurdufl í veiðarfærin í morgun. Skipið er úti fyrir Rifi á Snæfellsnesi og flutti björgunarsveitarbátur sveitina um borð í Skinney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×