Innlent

Pollrólegir með tundurdufl á þilfarinu

Valur Grettisson skrifar
Tundurdufl. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Tundurdufl. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Mynd úr safni.

„Við erum pollrólegir," segir Margeir Gumundsson, skipstjóri á togbátnum Skinney en skipverjar fengu tundurdufl í veiðarfærin snemma í morgun þar sem þeir voru við humarveiðar í Jökuldjúpi sunnan við Snæfellsjökul.

Þegar þeir fengu duflið í færin tilkynntu þeir það samstundis til landhelgisgæslunnar sem er á leiðinni ásamt sprengjusérfræðingum. Þeir voru ekki komnir um borð þegar fréttamaður ræddi við skipstjórann. Báturinn var þá staddur nærri Rifi við Snæfellsnes.

„Duflið er tiltölulega heilt," segir Margeir en skipverjar eru búnir að draga duflið upp og er það nú um borð í skipinu.

Aðspurður hvort þeir séu í hættu svarar Margeir því að það sé alltaf hætta af svona duflum, annars sé það sprengjusérfræðinga að úrskurða um það. Hann segir skipverjana rólega þrátt fyrir sprengihættuna.

Skinney hefur verið á veiðum sunna Snæfellsnes, eins og áður greindi frá. Að sögn Margeirs hefur veiðin verið blettótt, „það er gott inn á milli og svo rólegt aðra dagana."

Áætlað er að sprengjusérfræðingar komi um borð nú í hádeginu. Ekki verður siglt í land fyrr en ljóst er að engin hætta sé af duflinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×