Ristilhreinsun Jónínu sögð vera gagnslaus 11. júní 2010 06:00 Jónína Benediktsdóttir býður upp á ristilskolun að pólskri fyrirmynd í meðferðarstöð sinni Detox Jónínu Ben sem er til húsa á Keflavíkurflugvelli.
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir varar Jónínu Benediktsdóttur við því að ristilhreinsunarmeðferð hennar geti stangast á við lög um skottulækningar. Landlæknisembættið tók saman greinargerð vegna „svokallaðrar „Detox-læknismeðferðar" eða „Detox-heilsumeðferðar" á vegum Jónínu Benediktsdóttur íþróttafræðings. Kveikjan er sögð fjöldi kvartana og ábendinga. Fram kemur í greinargerðinni að Jónína hafi í október 2008 viljað hitta Matthías aðstoðarlandlækni til að ræða þá hugmynd að breyta einhverri af heilsustofnunum ríkisins í Detox-læknismeðferðarstöð. Áður hafði Jónína sent Matthíasi bréf. „Matthías þröngsýni þín segir mér að þú sért starfi þínu ekki vaxinn," skrifaði Jónína og bætti við: „Ef þú heldur að læknar hafi einkarétt á sjúkdómum fólks þá er það rangt. Fólkið vill sjálft lækna sig. Má það?" Í bréfi til Jónínu kveðst Matthías „ekki bjartsýnn" á þátttöku ríkisins í þjónustu sem ekki byggist á miklum vísindarannsóknum. „Tilfinning okkar nægir ekki, enda hefur til dæmis komið til okkar fólk sem telur sig geta læknað allt frá áfengissýki og einhverfu með sérstökum aðferðum," skrifar hann. Í greinargerðinni segir að Jónína hafi gert athugasemd við það að fulltrúar landlæknis hafi ekki komið og skoðað meðferðarstöðina eða fræðst sérstaklega um „Detox-prógrammið". Matthías segir hins vegar að auðvelt sé að kynna sér meðferðina án þess að koma á staðinn, því enginn skortur sé á auglýsingaefni. „Engin ástæða er til að eftirlitsstofnanir reyni alla meðferð á eigin skrokki," segir hann. Þá tekur Matthías fram að þótt ráða hafi mátt af auglýsingum að um læknismeðferð væri að ræða hafi Jónína ekki gert formlegt tilkall til þeirrar skilgreiningar. Starfsemin sé því í raun ekki undir eftirliti landlæknis. Embættið hafi hins vegar skyldur við almenning. „Megingagnrýni á hina svokölluðu Detox-meðferð varðar ristilhreinsanir. Enginn fótur er fyrir gagnsemi þeirrar meðferðar. Líkaminn sér að jafnaði sjálfur um að hreinsa út eiturefni. Sé haldið fram að slíkt sé hægt með því að skola neðsta hluta ristilsins þarf að sýna fram á vísindarannsóknir sem styðja slíkt, en þær hafa ekki komið fram," segir í greinargerðinni. Í bréfi til Matthíasar í desember 2009 frábiður Jónína sér afskipti hans af detox-stöðinni: „Ef þú og þetta fólk heldur áfram þessu einelti á hendur mér, starfsfólki mínu og fyrirtæki mun ég kæra þig og þau til dómstóla fyrir ítrekaðan atvinnuróg."
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna Sjá meira