Áfallahjálpin hefst á Bahama 20. janúar 2010 03:00 íslenska sveitin Íslenska sveitin hefur leitað í rústum í Port-au-Prince síðustu daga.Nordicphotos/afp
Íslenska rústabjörgunarsveitin leitaði í rústum hótelsins Montana í miðborg Port-au-Prince á Haítí í gær í von um að finna þar fólk, lífs eða liðið. „Þar bjó mikið af starfsfólki og fjölskyldum starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og annarra hjálparstofnana á svæðinu,“ segir Gísli Rafn Ólafsson hjá björgunarsveitinni. „Hlutverk okkar var fyrst og fremst að aðstoða við að finna það sem við köllum félaga okkar og fjölskyldur þeirra sem eru grafnar þarna í rústunum svo ættingjarnir geti fengið bundið enda á þessa óvissu,“ segir hann. Enginn fannst hins vegar á lífi í rústunum á Haítí í gær. Gísli sagði í gær að viðbúið væri að sveitin myndi leita fram á kvöld eða nótt í hótelrústunum. Menn væru þó vissulega þreyttir. „Við keyrum okkur samt áfram á voninni um að finna einhvern og hjálpa einhverjum. Það hjálpar okkur að finna þessa aukaorku sem við þurfum,“ segir Gísli. Síðan er áætlað að fljúga frá Haítí í hádeginu í dag. Komið verður við á Bahama-eyjum þar sem sveitin fær hvíld eftir mikla vinnu og byrjar áfallahjálparferli. „Héðan koma menn með þannig upplifun að þetta er mikil lífsreynsla og það þarf að passa andlega þáttinn alveg jafnvel og þann líkamlega,“ segir Gísli. Búist er við þeim til Íslands á fimmtudag. - sh
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira