Innlent

Ólykt og slysagildrur í ársgömlum rústum

Brunarústirnar hafa staðið óhaggaðar í rúmt ár. Íbúar í næsta húsi losa sig gjarnan við sorp í húsgrunninn og af því leggur ólykt. Þá telja íbúar í nágrenninu að rústirnar skapi slysahættu fyrir börn sem þar leika sér.Fréttablaðið / stefán
Brunarústirnar hafa staðið óhaggaðar í rúmt ár. Íbúar í næsta húsi losa sig gjarnan við sorp í húsgrunninn og af því leggur ólykt. Þá telja íbúar í nágrenninu að rústirnar skapi slysahættu fyrir börn sem þar leika sér.Fréttablaðið / stefán

Brunarústir við Klapparstíg 17 hafa staðið óhreyfðar og óvarðar í rúmlega ár. Íbúar í nálægu húsi nota ónýtan húsgrunninn sem sorphaug og börn leika sér á svæðinu. Íbúar hafa ítrekað kvartað til borgaryfirvalda vegna málsins.

Húsið á lóðinni, timburhús á steyptum kjallara, stórskemmdist í bruna 16. janúar í fyrra. Strax í kjölfarið var timburvirkið rifið vegna almannahættu, en kjallarinn stendur enn, ríflega ári síðar. Hann blasir við úr öllum áttum og börn hafa að honum greitt aðgengi. Leikvöllur er nokkra metra frá lóðinni.

„Mér finnst ekki hægt að bjóða fólki upp á þennan subbuskap,“ segir Jóna Jónsdóttir, sem býr gegnt brunareitnum. Hún hefur kvartað margoft yfir umgengninni og furðar sig á því að kjallarinn standi enn óhreyfður, rúmu ári eftir brunann.

„Kvartanir íbúanna eru réttmætar,“ segir Magnús Sædal, byggingarfulltrúi Reykjavíkur. „Þetta er óþolandi ástand. Það leggur af þessu ólykt og þarna er sóðaskapur.“

Embætti byggingarfulltrúa lagði til í byrjun febrúar að beitt yrði dagsektum til að knýja á um að kjallarinn yrði fjarlægður, lóðin jöfnuð og tyrfð og girt af.

Í ljós kom að eigendur lóðarinnar höfðu þá sótt um byggingarleyfi á reitnum til skipulagsyfirvalda. Magnús segir að búið sé að gera athugasemdir við fyrirliggjandi teikningar. Hann búist við að málið sé nú að leysast og að kjallarinn hverfi á brott á næstu vikum. „Og því verður fylgt eftir að rústirnar fari þó svo að ekki verði af byggingu strax,“ segir Magnús.

Í andmælum til byggingarfulltrúa gagnrýna lóðareigendur hversu illa hefur gengið að afla svara hjá borginni um framkvæmdareglur og tafirnar sem það hefur valdið þeim. Þá benda þeir á að brunarústirnar séu sönnunargögn í dómsmáli sem þeir standa í gegn tryggingafélögum, sem halda því fram að í grunni hússins felist verðmæti. Þar til niður­staða fæst í málið geti þeir ekki fjarlægt það sem enn stendur eftir af húsinu.

stigur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×