Gengistrygging: Prófmál þingfest í héraði 2. júlí 2010 12:21
Prófmál um uppgjör gengistryggðra lánasamninga var þingfest fyrir héraðsdómi í gær. Rati málið fyrir hæstarétt mun dómur réttarins að öllum líkindum eyða óvissu um hvort samningsvextir lánanna standi eða ekki. Einn stærsti óvissuþátturinn eftir að hæstiréttur dæmdi gengistryggingu lána ólöglega er samkvæmt hvaða skilmálum beri að gera lánin upp, það er að segja hvaða vextir verði lagðir á lánið þegar það verður uppreiknað. Það verður að öllum líkindum Hæstiréttur sem hefur síðasta orðið um það, en til að draga úr óvissu sendu Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið frá sér tilmæli til fjármálastofnana um að reikna lánin miðað við vexti sem seðlabankinn ákveður í stað samningsvaxta þangað til dómur fellur. Nú hefur fyrsta málið þar sem ágreiningur er um þetta atriði hins vegar ratað fyrir dómstóla. Í gær var mál Lýsingar gegn skuldara þingfest fyrir héraðsdómi, en málflutningur hefst næsta miðvikudag. Lýsing krefst þess að lánið verði gert upp miðað við verðtryggingu og vexti samkvæmt gjaldskrá fyrirtækisins. Til vara er þess krafist að það verði gert upp miðað við verðtryggða vexti seðlabankans, óverðtryggða vexti Lýsingar eða óverðtryggða vexti seðlabankans. Fyrirtækið segir að forsendubrestur hafi átt sér stað þegar gengistryggingin var dæmd ólögleg, og samningsvextirnir séu því of lágir. Skuldarinn krefst þess hins vegar að vextir lánsins samkvæmt upphaflegum samningi standi óhaggaðir. Jóhannes Árnason, verjandi mannsins, segist telja að samkvæmt lögum ætti ekki að vera hægt að breyta samningnum eftir á, neytandanum í óhag.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Sjá meira