Bakktjón algengasta umferðartjónið 31. ágúst 2010 12:55
Bakktjón (ekið afturábak) er algengasta orsök umferðartjóna hér á landi eða 31 prósent allra tjóna samkvæmt nýrri skýrslu frá Sjóvá fyrir árið 2009. Þar segir að bakktjónum hafi þó fækkað lítillega undanfarin 3 ár. Næst flest tjón í umferðinni verða með þeim hætti að ökumaður ekur á kyrrstæðan hlut eða í 21 prósent tilfella. Í mörgum tilfellum eiga þessi tjón það sameiginlegt að rekja má orsök þeirra til þess að ökumaður verður fyrir truflun eða hann er í vaxandi mæli að aka og framkvæma aðra hluti á meðan. Þetta er áhyggjuefni og vill Sjóvá koma því á framfæri við ökumenn að akstur krefjist fullrar athygli og því sé ekki rými til þess að framkvæma aðra hluti samhliða akstri. Þegar skoðað er við hvaða aðstæður flest slys verða í umferðinni þá kemur í ljós að flest þeirra verða við útafakstur eða í 29% tilfella. Tjón vegna útafaksturs eru hins vegar ekki nema 4% allra tjóna. Útafakstur verður oft við aðstæður þegar ekið er hratt eða þegar bifreið veltur í kjölfar útafaksturs. Líkur á slysi eru miklar, sérstaklega ef ökumenn eða farþegar nota ekki bílbelti. Notkun bílbelta er sem fyrr eitt mikilvægasta öryggistæki bílsins og áminningar um að nota bílbelti eiga alltaf við. Aftanákeyrslur eru önnur helsta orsök slysa í umferðinni árið 2009 eða í 26% tilfella. Að meðaltali eru afleiðingar slíkra slysa og áverka ekki jafn alvarlegar og vegna útafaksturs. Hins vegar er það svo að áverkar á hnakka og bak sem oft verða í kjölfar aftanákeyrslu geta haft langvarandi afleiðingar fyrir hinn slasaða og jafnvel örorku í för með sér. Sjóvá bendir á að slys vegna aftanákeyrslu geta orsakast á tiltölulega lítilli ferð. Rétt bil á milli bíla og rétt stilling hnakkapúða eru einföld atriði sem ökumaður getur vanið sig á og getur í mörgum tilfellum komið í veg fyrir áverka vegna aftanáaksturs eða í það minnsta fækkað alvarlegum áverkum vegna þeirra. Áverkar vegna aftanákeyrslu eru oft á tíðum vanmetnir og í mörgum tilfellum er það svo að afleiðingarnar koma ekki í ljós fyrr en að nokkur tími er liðinn frá árekstri. Áríðandi er að auka vitund gagnvart tjónum og slysum vegna aftanákeyrslna.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira