Lítil viðbrögð vegna aðildarviðræðna Hafsteinn Hauksson. skrifar 20. júní 2010 12:59 Ekki bólar á miklum viðbrögðum ráðuneyta vegna aðildarviðræðna.
Fæst ráðuneyti hafa bætt við starfsmannahald sitt vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið, og ekkert þeirra hefur keypt utanaðkomandi ráðgjöf. Þau gera ekki ráð fyrir miklum skipulagsbreytingum vegna viðræðnanna. Í svörum allra ráðherra við fyrirspurn þingmannsins Gunnars Braga Sveinssonar um umsókn um aðild að Evrópusambandinu kemur fram að ekkert ráðuneyta ríkisstjórnarinnar eða undirstofnana þeirra hafi fjölgað í starfsmannaliði sínu vegna umsóknarinnar. Eina undantekningin er þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins, þar sem fjölgunin nemur níu starfsmönnum auk þess sem fyrirhugað er að ráða allt að 14 þýðendur síðar á árinu. Í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kemur reyndar fram að mikil þörf væri á að fjölga í starfsliðinu, þó það hafi ekki verið gert. Þá kemur jafnframt fram að ekkert ráðuneytanna hefur keypt utanaðkomandi ráðgjöf vegna aðildarumsóknarinnar, fyrir utan tilfallandi þýðingarvinnu. Í svörum margra ráðherra segir að starfsmenn ráðuneytanna og undirstofnana þeirra hafi sinnt vinnu við aðildarumsókn Íslands að ESB meðfram venjubundnum verkefnum sínum, eða til viðbótar við þau. Þá kemur fram að flest ráðuneytin telja ekki þörf á breytingum á skipulagi ráðuneytanna eða stofnana þeirra vegna aðildarferlisins. Forsætisráðuneytið segir þó að sé litið á stjórnsýsluna í heild megi gera ráð fyrir nokkrum breytingum á fyrirkomulagi hennar og stofnanauppbyggingar eftir að fyrir liggur niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning. Þá segir fjármálaráðuneytið að unnið sé að kortlagningu þessara breytinga. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið segir að verulegar breytingar verði á stjórnsýslu á sviði Landbúnaðar ef til aðildar kemur. Eins og fram hefur komið í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis er gert ráð fyrir allt að 990 milljóna beinum kostnaði við aðildarviðræður við Evrópusambandið fram til ársins 2012, einkum við þýðingarvinnu.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira