Er rétt að birta öll málsskjöl í dómsmálum á netinu? Þorbjörn Þórðarson. skrifar 11. júlí 2010 18:35
Formaður dómstólaráðs segir að vel megi taka til athugunar breytingar á reglum um birtingu dómsskjala til að auka aðgang almennings að þeim, en núverandi fyrirkomulag byggir á gömlum merg. Athygli hefur vakið eftir að slitastjórn Glitnis höfðaði mál gegn fyrrverandi eigendum og stjórnendum bankans fyrir dómstóli New York-fylkis í Bandaríkjunum hversu mikið gagnsæi virðist einkenna réttarfar þar í landi, en á vef dómstólsins eru nær öll gögn málsins aðgengileg. Allar eiðsvarnar yfirlýsingar og ítarlegar upplýsingar um málsástæður og lagarök aðila málsins eru birtar á netinu. Hér á Íslandi er aðgangur að dómsskjölum mun takmarkaðri. Dómsniðurstöður eru hins vegar birtar á vefsíðum dómstólanna, bæði Hæstaréttar og vef héraðsdómstólanna. Í flestum tilvikum eru nöfn aðila máls birt, en þó ekki í viðkvæmum málum eins og forsjárdeilum og ákveðnum tegundum sakamála. Þá eru ákæruskjöl aðgengileg hjá ákæruvaldinu þremur dögum eftir birtingu ákæru, en það er í samræmi við heimild sem tekin var upp í 156. gr. laga um meðferð sakamála. Á grundvelli þessar heimildar gátu fjölmiðlar fengið aðgang að ákæru á hendur þremenningum í Exeter-málinu, svo dæmi sé tekið. Hins vegar er enginn annnar aðgangur veittur og gögn úr dómsmálum sem rata í hendur almennings komast aðeins í gegnum nálaraugað að því gefnu að einhver leki þeim eða afhendi þau. En hvað er því til fyrirstöðu að auka aðgang að gögnum máls líkt og dómstólar gera vestanhafs? Og yrði það ekki til þess fallið að auka gagnsæi, veita ákæruvaldinuaðhald og til þess fallið að upplýsa mál betur, sérstaklega ef almenningur hefði kost á að skoða skjölin og koma athugasemdum á framfæri? „Það eru sjónarmið sem vegast á í þessu. Við höfum byggt okkar réttarkerfi á norrænni hefð þar sem að við miðum við að til þess að fá aðgang að skjölum þurfi menn að hafa lögvarða hagsmuni. Við erum að girða fyrir það að fólk sé að hnýsast af einskærum áhuga í einhver mál, forvitnast. Um leið og menn hafa lögvarða hagsmuni, þ.e að það skipti máli fyrir fólk að lögum að komast í gögnin, þá veitum við aðgang. Á móti kemur tillitið til hagsmuni þeirra sem í hlut eiga, það er verið að vernda þá," segir Símon Sigvaldason, héraðsdómari og formaður Dómstólaráðs. „Vissulega erum við alltaf opnir fyrir því að skoða hvort að önnur sjónarmið eigi rétt á sér og séu þau rétthærri en þessi. Þetta má því svo sannarlega taka til endurskoðunar," segir Símon.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira