Karlmenn á háum hælum ganga gegn ofbeldi Erla Hlynsdóttir skrifar 7. október 2010 11:09 Svavar Knútur segir háa hæla hálfgerð morðvopn en ætlar engu að síður að ganga á þeim til að vekja athygli á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum
Tveir karlmenn hafa tekið sig saman og ætla að ganga á háum hælum til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum. Þeir eru bjartsýnir á að góður hópur karlmanna verði með þeim og þegar hefur ein kona sem notar stóra skó boðist til að lána þá til karlanna. Svavar Knútur Kristinsson tónlistarmaður er annar skipuleggjenda viðburðarins. „Ég væri alveg til í að rölta aðeins um á háum hælum og sjá hvernig það gengur," segir hann. Svavar tekur fram að hann hafi aldrei skilið af hverju konur ganga í háhæluðum skóm. „Aldrei hef ég ætlast til þess og finnst bara fallegt að sjá konur á strigaskóm eða bara í gúmmístígvélum þess vegna," segir hann og líkir háum hælum helst við morðtól. Skipulagning viðburðarins er alveg á byrjunarstigi en hugmyndin kom fyrst fram á póstlista femínista. Þar var sagt frá því að í Toronto í Kanada hafi karlmenn tekið sig saman og staðið fyrir hópgöngu á háum hælum. Viðburðurinn kallaðist „Walk a mile in her shoes" og gengu þeir eina mílu á hælum, með góðum árangri. Nú ætla íslenskir kynbræðir þeirra að gera slíkt hið sama. Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur ætlar að skipuleggja gönguna með Svavari Knúti. Á póstlistanum lýstu þeir sig báðir reiðubúna il að setja sig í spor kvenna í bókstaflegri merkingu. „Ég er viss um að við getum fengið fjölda karlmanna til liðs við okkur," segir hann.Ein stærsti höfuðverkurinn við að koma hugmyndinn í framkvæmd er skortur á háhæluðum skóm í stórum stærðum. Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hefur þó stigið fram og býðst til að lána sína skó. Hún segist eiga nokkuð af kvenskóm í stærð 44 og jafnvel stærð 45, en fæstir með mjög háum hælum. Karlmennirnir vonast til að fleiri konur sem nota stóra skó bjóði þá fram. Dagsetning viðburðarins er enn óákveðin. Þeir Kolbeinn og Svavar verða báðir erlendis þegar baráttuhátíð vegna kvennafrídagsins verður haldin í Reykjavík dagana 24. og 25. október, og því ljóst að viðburðurinn verður annað hvort fyrir eða eftir þann tíma. Myndband frá göngunni „Walk á mile in her shoes" sem haldin var í Kanada á síðasta ári má sjá með því að smella hér.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira