Tvöföldun Suðurlandsvegar frestast Kristján Már Unnarsson skrifar 20. júní 2010 18:32
Kærunefnd útboðsmála hefur stöðvað samningagerð vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar við Sandskeið. Nefndin telur vafa leika á að Vegagerðin hafi staðið rétt að málum við val á verktaka. Vegna þessa tefst að hefja framkvæmdir um nokkra mánuði. Það ætlar ekki að ganga vandræðalaust fyrir stjórnvöld að koma nýjum framkvæmdum í gang en tvöföldun Suðurlandsvegar á sjö kílómetra kafla milli Lögbergsbrekku og Litlu Kaffistofunnar stefndi í að verða fyrsta stóra verkið í vegagerð eftir hrun. Skilyrði í útboði um að ársvelta fyrirtækis bjóðanda hafi að lágmarki verið sem nemur 50% af tilboði bjóðanda í verkið síðastliðin 3 ár, er nú orðið tilefni kærumáls milli Vegagerðarinnar og Háfells, þess verktaka sem átti þriðja lægsta boð. Vegagerðin hafði sjálf hafnað lægsta boði frá Arnaverki, upp á 607 milljónir króna, á grundvelli þessa skilyrðis um lágmarksveltu, og ákveðið að semja við Vélaleigu AÞ, sem átti næstlægsta boð upp á 619 milljónir. Háfell telur hins vegar að Vélaleigan AÞ fullnægi heldur ekki skilyrði um lágmarksveltu og hefur kært Vegagerðina. Viðurkennt er að Vélaleigan nær ekki lágmarksveltu eitt árið en deilt er um þá túlkun Vegagerðarinnar á skilyrðinu að verktaki þurfi ekki öll þrjú árin að hafa náð lágmarkveltu heldur nægi að hún sé að meðaltali þesssi þrú ár yfir lágmarkinu. Kærunefnd útboðsmála telur vafa um að Vegagerðin hafi réttilega staðið að málsmeðferð og hefur því stöðvað samningsferlið þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Niðurstaða fæst að öllum líkindum ekki fyrr en síðsumars og því blasir við að upphaf framkvæmda tefst fram á haust hið minnsta.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Sjá meira