Innlent

Segir afstöðu sína ekkert með ákvörðun um aðalskipulag að gera

Heimir Már Pétursson skrifar
Svandís Svavarsdóttir. Mynd/ Valgarður.
Svandís Svavarsdóttir. Mynd/ Valgarður.
Umhverfisráðherra segir að það hafi ekkert með afstöðu sína til virkjana fyrir stóriðju að gera, að aðalskipulagi tveggja hreppa sem liggja að Þjórsá var hafnað. Úrskurður ráðherrans setur virkjanaframkvæmdirnar í Neðri-Þjórsá í óvissu.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur hafnað tillögum Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps um aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Ráðherra segir að henni sé óheimilt að samþiggja tillögurnar þar sem Landsvirkjun hafi komið að greiðslu kostnaðar við gerð skipulaganna en það sé óheimilt samkvæmt lögum.

Ekkert gildandi aðalskipulag er í Flóahreppi og því þarf hreppurinn að skila inn tillögum að nýju skipulagi, en í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er hins vegar gildandi skipulag og dugar Skeiða- og Gnúpverjahreppi því að fjarlægja virkjanirnar úr skipulaginu og verður aðalskipulagið þá samþykkt segir ráðherra.

Sveitarfélögin og skipulagssjóður megi þá ein standa undir kostnaði við gerð skipulagsins. Stórir hagsmunaaðilar megi ekki koma að því að greiða kostnaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×