Laga stíga vegna gossins 12. apríl 2010 05:30 Fjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína að gosstöðvunum að undanförnu og þeim á eftir að fjölga til muna í sumar.fréttablaðið/gva
Mikil umferð hefur verið um svæði í nágrenni gosstöðvanna við Fimmvörðuháls með tilheyrandi álagi á svæðin. Búast má við að sú umferð aukist enn með hækkandi sól og því er farið að huga að því að gera allt sem best úr garði fyrir sumarið. Skógrækt ríkisins hefur haft umsjón með Goðalandi og Þórsmörk síðan á þriðja áratug 20. aldar. Svæðin voru friðuð fyrir beit og síðan hafa birkiskógar breiðst þar út. Til að koma í veg fyrir gróður og jarðvegsskemmdir í brattlendi á nú að fara í átak til að bæta stígakerfið. Það er einnig gert með öryggissjónarmið í huga. „Það hefur verið gríðarleg aukning ferðamanna um svæðið með hraunstaumum niður í Goðaland. Stígar á svæðinu eru engan veginn gerðir til að anna slíkum ferðamannastraumi og allra síst að vori til,“ segir Hreinn Óskarsson, verkefnisstjóri Hekluskóga og starfsmaður Skógræktar ríkisins. Hreinn segir von á fjölda manns í sumar. „Það er áætlað að 50 til 75 þúsund manns eigi eftir að ganga upp á Morinsheiði og á nærliggjandi fjöll ofan Bása til að berja nýja eldfjallið og hraunstraumana í Hrunagili og Hvannárgili augum. Þeir munu koma óháð því hvort áfram heldur að gjósa eða ekki.“ Nú er unnið að því að tryggja það fjármagn sem þarf til að ljúka verkinu eins fljótt og hægt er áður en ferðamannastraumurinn hefst fyrir alvöru. Hreinn segir marga hafa komið að verkefninu: Ferðamálastofu, ferðaþjónustuaðila á Merkursvæðinu, Rangárþing eystra og sjálfboðaliða í stígagerð frá Umhverfisstofnun. Á miðvikudag verður farin ferð í Goðaland og Hreinn segir að samningar séu að nást við þyrluþjónustur um að flytja efni á svæðið. Allir hafi hag af því að koma þessum hlutum í lag fyrir sumarið. kolbeinn@frettabladid.is ferðamenn Búist er við að 50 til 75 þúsund manns leggi leið sína á Morinsheiði og nærliggjandi fjöll í sumar.mynd/hreinn óskarsson
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent