Innlent

Skorar á Pál að nefna dæmi

Júlíus Vífill Ingvarsson.
Júlíus Vífill Ingvarsson.

Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, ætti að nefna hvaða mál það eru sem hann hefur erft frá síðasta meirihluta, sem hafa skapað borginni skaðabótaskyldu, segir Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrum formaður skipulagsráðs fyrir Sjálfstæðisflokk.

Páll sagði í blaðinu á föstudag að af hátt í sjötíu málum sem nýr meirihluti hefði erft frá fyrri meirihluta væru nokkur sem virtust þannig vaxin. Páll vildi ekki nefna dæmi um þetta. „Við skildum ekki við nein mál í biðstöðu eða óvissum farvegi. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að nú fari að hrannast upp fjöldi mála, þar sem skipulagsráð hefur ekki komið saman nema fjórum sinnum frá kosningum, sem er lakari árangur en ég man eftir hjá borginni,“ segir Júlíus Vífill.

Einnig gerir Júlíus athugasemdir við það að Páll segi Besta flokkinn hafa „skýrt umboð“ til breytinga í borginni.

„Besti flokkurinn kynnti aldrei neina stefnu í skipulagsmálum fyrir kosningar og því má velta fyrir sér hvaða umboð þetta ætti að vera. Í þessu viðtali var í fyrsta skipti eitthvað lagt fram um stefnu Páls í skipulagsmálum,“ segir Júlíus Vífill. Þá segir hann að það verði skondið að sjá viðbrögð Samfylkingar við hugmyndum Páls um að hætta við samgöngumiðstöð, sem sé mikið áhugamál þess flokks. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×