Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi 4. desember 2010 13:39 Mynd/Valgarður Gíslason
Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. „Styrkir frá fyrirtækjum til flokksins eða einstaklinga innan hans geta dregið úr trúverðugleika flokksins og frambjóðenda á hans vegum vegna hagsmunatengsla sem eru óhjákvæmilegur fylgifiskur slíkra styrkja. Styrkir bjóða hættunni heim. Þá er það óeðlilegt að aðilar utan flokksins kosti baráttu innan hans um sæti á framboðslista eða stöður í flokknum," segir í skýrslunni.Samfylkingin gerði alvarleg mistök Niðurstaða umbótanefndar er að Samfylkingin hafi gert alvarleg mistök með því að leyfa málum að þróast í það horf að kostnaðarsöm kosningabarátta væri nauðsynleg til að eiga möguleika á að ná sæti ofarlega á framboðslista. „Bæði flokkurinn og einstakir frambjóðendur hafa þegið styrki sem eru í mótsögn við þá grundvallarreglu stjórnmálaflokka að forðast hagsmunatengsl sem geta rýrt trúverðugleika þeirra. Þessi mótsögn er átakanleg í ljósi þess að Samfylkingin hefur lagt sérstaka áherslu á að stunda vinnubrögð gegnsæis og trúverðugleika. Flokkurinn hefur sóst eftir háum upphæðum frá fjársterkum aðilum í stað þess að leggja áherslu á fjáröflun sem hluta af grasrótarstarfi þar sem einstaklingar leggja flokknum lið með lágum upphæðum."
Tengdar fréttir Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12 Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Sjá meira
Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12
Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16