Persóna Davíðs þvældist fyrir Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 12. apríl 2010 19:15
Heift, harðar deilur, tortryggni og eitrað andrúmsloft milli ráðherra Samfylkingar og Davíðs Oddssonar þvældist fyrir þegar seðlabankstjórinn Davíð upplýsti stjórnvöld um stöðu bankanna. Persóna hans og pólitísk fortíð hafði bein áhrif á neyðarviðbrögð stjórnvalda, að mati rannsóknarnefndinnar. „...fyrri stjórnmálaþátttaka formanns bankastjórnar Seðlabankans hafði bein áhrif á það hvernig ráðherrar brugðust við upplýsingum sem formaðurinn (þ.e. Davíð) flutti fulltrúum ríkisstjórnarinnar um alvarlega stöðu bankanna." Segir í skýrslunni og nefndin telur því það ekki „æskileg skipan mála að í starf seðlabankastjóra veljist fyrrverandi stjórnmálamenn". Það er deginum ljósara í skýrslunni að seta Davíðs í Seðlabankanum markaði verulega samskipti Seðlabanka og stjórnvalda. Þannig varð harkaleg deila milli Davíðs og bankamálaráðherra um Evrópumál til þess að þeir hittust ekki á fundi í nærri heilt ár - örlagaríkt ár í bankalífi landsins - og hittust ekki aftur á fundi fyrr en nokkrum dögum fyrir fall bankanna. Merki um tortryggnina á milli mikilvægra aðila í krísustjórnun fjármálalífsins - má til að mynda sjá í lýsingu þáverandi leiðtoga Samfylkingar af fundi með forystumönnum ríkisstjórnar og bankastjórnar Seðlabankans í febrúar 2008. Þar segir hún að í eintali Davíðs hafi verið erfitt: "að greina á milli frásagna hans af staðreyndum og persónulegrar afstöðu hans til manna og málefna, litaðri af pólitískum ákvörðunum og átökum fyrri ára." En persóna Davíðs - þvældist ekki bara fyrir svörnum andstæðingum hans í pólitíkinni - heldur einnig samherjum. Þannig lýsir Geir Haarde samskiptum sínum við Davíð - samstarfsmanni hans til 40 ára og gamals vinar - við skýrslutöku svo: „Og það má segja að það hafi flækt okkar samstarf, vegna þess að maður gat ekki alltaf áttað sig á því hvenær var hann ... að tala við mig sem minn forveri í starfi út af einhverju sem hann vissi? Og hvenær var hann embættismaðurinn að ráðleggja forsætisráðherranum? Þetta var flókið, sérstaklega vegna þess að honum hættir til að vera stóryrtur, taka djúpt í árinni, „dramatísera"." Þá hafi Geir gjarnan deilt "með tveimur eða fjórum" í frásögn Davíðs. Persóna Davíðs leiddi þannig til þess, að mati rannsóknarnefndarinnar, að sérfræðiþekking manna í Seðlabankanum hafi lítt notið við þegar neyðarlögin voru samin. Viðvaranir úr Seðlabanka var tekið með tortryggni. Þegar Geir lagði til að Davíð leiddi þriggja manna neyðarstjórn í byrjun október - hótaði Össur Skarphéðinsson stjórnarslitum. Og þegar Davíð stakk upp á þjóðstjórn var vantraustið slíkt að ráðherrar úr báðum flokkum - töldu að honum bæri að víkja úr stóli Seðlabankastjóra. Þá er haft eftir Jóni Steinssyni hagfræðingi í skýrslunni að „starfsmenn Seðlabankans hefðu sagt Jóni að Davíð Oddsson talaði um Geir sem „idjót". " Af þessu verður ekki ráðið að mikið traust hafi verið á milli þessara veigamiklu stofnana í íslensku fjármálakerfi.
Mest lesið Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Innlent Fleiri fréttir Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent