Bekkpressukeppni í bíó 11. ágúst 2010 12:00 Allir kjötuðustu menn Íslands mæta á The Expendables í Laugarásbíói að sögn Egils. „
Allir kjötuðustu menn á Íslandi munu mæta á þessa sýningu. Það er ekki eitt vöðvafjall sem verður heima hjá sér á föstudaginn,“ segir Egill „Þykki“ Einarsson. „Þetta verður testósterón-sýning.“ Hasarmyndin The Expendables, sem skartar jöxlum á borð við Sylvester Stallone, Bruce Willis, Jet Li, Mickey Rourke og Jason Statham, verður forsýnd í Laugarásbíói á föstudaginn. Bekkpressubekkur verður í anddyrinu og þeir sem lyfta 100 kílógrömmum fá ókeypis á myndina. Kraftajötuninn Hjalti „Úrsus“ Árnason verður dómari og uppákoman er í boði Fitnesssport og Gillz.is. „Ég vil helst að það verði enginn maður í salnum sem taki undir 100 kíló í bekk. Ef einhver reynir við 100 kílóin og drullar á sig á að senda hann heim strax, því það er enginn leikari í myndinni sem tekur undir 100 kg í bekk,“ segir Egill. Hann útilokar ekki að spreyta sig sjálfur á bekknum í tilefni dagsins. „Ég kannski pumpa þetta 20 til 25 sinnum til að sýna litlu kjúklingunum hvernig á að gera þetta,“ segir hann og bætir við: „Eina vandamálið við þessa sýningu þar sem öll steratröll á landinu mæta er að þarna situr maður með kjötaðan mann báðum megin við sig. Menn þurfa að harka það af sér og menn munu líka reka við af öllu prótíninu og það verður ekki góð lykt.“ Þykki er að vonum spenntur fyrir myndinni, enda er hann meðlimur í íslenskum aðdáendaklúbbi Stallones. „Við erum að tala um mestu harðhausamynd sem gerð hefur verið og líklega er þetta besta mynd sem búin hefur verið til. Ég er búinn að bíða eftir henni eins og lítið barn í þrjá mánuði og tel niður mínúturnar,“ segir hann og hvetur íslenska harðhausa til að mæta klukkutíma fyrir sýninguna, sem hefst klukkan 18. - fb
Mest lesið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Menning Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Lífið „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Lífið Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Lífið Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Lífið Abba skilar 350 milljörðum í kassann Tónlist Ósáttur við framhaldið: „Skildu ekki hvað gerði þá fyrstu sérstaka“ Bíó og sjónvarp Höfundur Kaupalkabókanna látinn Lífið Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Lífið Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Lífið Fleiri fréttir Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Ómar Úlfur nýr dagskrárstjóri Bylgjunnar Sveppi gerði fyrsta ógeðsdrykkinn í tuttugu ár fyrir Bjarna Ben Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Þrír Geirar skírðir í Jónshúsi Bílakarókí Bítisins: Hauspokinn gerði mikið fyrir sönginn Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Sjá meira