Innlent

Ríkisstjórnin hefur áhyggjur af stöðu Reykjanesbæjar

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Kristján Möller, samgönguráðherra.
Kristján Möller, samgönguráðherra.

Kristján Möller, samgönguráðherra, segir að enn sem komið er hafi ekkert sveitarfélag óskað eftir fjárhaldsstjórn, annað en Álftanes. Ríkisstjórnin hefur miklar áhyggjur af stöðu sveitarfélaga og málefni Reykjanesbæjar voru rædd á ríkisstjórnarfundi í gær.

Kristján, nú eru skuldir Reykjanesbæjar 400 prósent af árstekjum og sveitarfélagið er í miklum vanda eins og fleiri sveitarfélög hér á landi. Hyggst ríkisstjórnin gera eitthvað til að greiða úr vanda þeirra?

„Fyrst vil ég segja að aðeins eitt sveitarfélag hefur komið til okkar og óskað eftir fjárhaldsstjórn. Það er verkefni sveitarfélaga að óska eftir þannig vinnu ef mál æxlast þannig. Það hefur enginn annar gert," segir Kristján.

Kristán segir að hann hafi kynnt fyrir ríkisstjórninni nýja úttekt eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Nokkur sveitarfélög, þar á meðal Reykjanesbær, fá á næstunni bréf frá eftirlitsnefndinni og heimsókn þar sem farið verður yfir fjárhagsvandann.

Áttu von á því að það verði skipuð fjárhaldsstjórn yfir Reykjanesbæ?

„Nei, ég get nú ekki (...) eins og ég segi, það verður að koma frá sveitarfélaginu sjálfu eftir tvær umræður hjá sveitarstjórn, sama hvort það er Reykjanesbær eða einhver annar," segir Kristján.

Hann segir að málefni sveitarfélaga hafi verið rædd á ríkisstjórnarfundi í gær, en vill ekki gefa upp afstöðu samráðherra sinna, en samkvæmt heimildum fréttastofu lýstu ráðherrar áhyggjum sínum af þeirri stöðu sem upp er komin, t.d hjá Reykjanesbæ.




Tengdar fréttir

Eftirlitsnefnd vissi ekki um vanskil hjá Reykjanesbæ

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hyggst senda bréf til þeirra sveitarfélaga sem skulda meira en 150% af heildartekjum á næstu dögum. Reykjanesbær hefur ekki greitt lán upp á 1,8 milljarða sem féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Eftirlitsnefndin vissi ekki um það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×