Treystir á víðtækt samstarf um úrlausnir 6. október 2010 06:00 Ráðherrarnir leggja ríka áherslu á að samvinna takist milli stjórnar og stjórnarandstöðu um lausnir á skuldavanda heimila og fyrirtækja. Eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun fundaði nýskipaður hópur fimm ráðherra og síðdegis hittu leiðtogar ríkisstjórnarinnar stjórnarandstöðuna í þinghúsinu. fréttablaðið/gva
Ríkisstjórnin treystir á samvinnu við stjórnarandstöðuna, hagsmunasamtök heimilanna, aðila vinnumarkaðarins og bankana um lausnir á skuldamálum heimila og fyrirtækja. „Við höfum farið í mjög miklar aðgerðir fyrir heimilin í landinu en það virðist ekki duga og við verðum bara að halda áfram því verki,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á fundi með blaðamönnum eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun. Hún, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, ræddu stöðu mála eftir mótmæli þúsunda á Austurvelli á mánudagskvöld. Jóhanna lagði ríka áherslu á breiða samvinnu um skuldamálin. Sagði hún tímabært að athuga hvort hægt væri að ná sátt um þau brýnu úrlausnarefni. „En ég held að þetta verði að ske fljótt, það er reiði í samfélaginu og mikil óánægja og við verðum að taka þessi skilaboð til okkar, ekki bara við við ríkisstjórnarborðið heldur stjórnmálamenn í heild sinni.“ Nauðungarsölum verði frestaðJóhanna sagðist aðspurð ekki telja að þjóðstjórn leysti vandann. Spurð hvort von væri um samvinnu við sjálfstæðismenn eftir landsdómsatkvæðagreiðslurnar sagði hún að menn gætu ekki látið það mál þvælast fyrir sér. „Við getum ekki látið gremjuna krauma út af því máli. Við verðum að setja það til hliðar og reyna að leysa þessi brýnu hagsmunamál sem fólkið er að kalla eftir.“ Jóhanna sagði forgangsmál að forða fólki frá nauðungarsölum. Forsenda þess væri þó að fólk væri með sín mál í réttum farvegi. „Það er mjög mikilvægt að allir sem eru með sín mál í vinnslu í kerfinu, hjá bönkunum og umboðsmanni [skuldara] fái frest á að þeirra íbúðir fari á uppboð þar til fyrirséð er hvaða lausnir er hægt að finna á þeim málum.“ Staðan væri samt sú að frestun á uppboðum hefði varað í langan tíma og þann tíma hefði fólk átt að nýta til að vinna í sínum málum. „Staðan hjá sumum er þannig að það verður hugsanlega ekki hægt að bjarga þeim.“ Tryggja þyrfti félagsleg úrræði fyrir fólk sem ekki hefði ráð á að búa í eigin húsnæði. Gjaldþrot leysa ekki efnahagsvandannÁrni Páll sagði að greiðsluaðlögunarúrræði stjórnvalda hefðu ekki nýst sem skyldi. Sú vanahugsun væri sterk að óeðlilegt væri að afskrifa skuldir fólks sem gæti ekki staðið undir skuldum sínum. „Þetta hugarfar hefur mengað og gegnsýrt jafnt dómstóla landsins og bankakerfið ... Við verðum að horfast í augu við að það að setja fólk í þrot leysir engan efnahagsvanda heldur þvert á móti.“ Spurður hvort til greina kæmi að samþykkja svokallað lyklafrumvarp Lilju Mósesdóttur sagðist Árni Páll ekki vera viss um að sú leið leysti nokkurn vanda. Ávinningurinn væri mjög ofmetinn og reynslan frá Bandaríkjunum væri slæm. Ísland þyrfti að sækja sér fyrirmyndir í húsnæðismálum til Norðurlandanna. „Við eigum að byggja upp velferðarkerfi, íbúðalánakerfi og húsnæðiskerfi að norrænni fyrirmynd.“ Bankarnir hafa klikkaðRíkisstjórnin hefur beint spjótunum að bönkunum. Í stefnuræðunni sagði Jóhanna Sigurðardóttir þá hafa valdið sér vonbrigðum við skuldameðferð heimila og fyrirtækja. Árni Páll sagði bankana eiga um tvo kosti að velja. Annars vegar að reyna að innheimta skuldir í vanskilum og valda sjálfum sér miklu tjóni, búa við ónýta efnahagsreikninga og almennt vekja vantrú á sjálfum sér sem stofnunum. „Eða þeir geta kosið að nýta það svigrúm sem þeir hafa til að mæta fólki og fyrirtækjum sem þurfa á fyrirgreiðslu að halda, koma lánum í skil og sýna þar með traustan grunn fyrir framtíðina.“ Steingrímur kvaðst þeirrar skoðunar að allt of hægt hefði gengið að vinna úr skuldum lífvænlegra fyrirtækja. Fyrir vikið hefði efnahagsbatinn tafist mjög. Bankarnir hefðu ekki staðið sig. Steingrímur sagði að þátttaka bankanna í endurreisn efnahagslífsins hefði verið ein meginástæða þess að þeir hefðu verið settir á fót, með verulegum ríkisframlögum. „Og við ætlumst til þess að þeir setji þau mál í aukinn forgang.“ Allir hefðu hag af því, líka eigendur bankanna. Hann sagði að vissulega væru til skýringar á því hversu mál hefðu dregist. Óvissan um gjaldeyris- og myntkörfulánin hefði til dæmis tafið fyrir. Nú gætu þau mál komist á hreint. „Þar er þá eytt óvissu á stóru sviði. Við vitum að þau lán hafa verið stór hluti vandans hjá mjög mörgum, til dæmis bílalánin.“ bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira