Innlent

Engar breytingar gerðar á ákærunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Engar efnislegar breytingar voru gerðar á þingsályktunartillögum um ákærur gegn ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar þegar þingmannanefnd Atla Gíslasonar fór yfir málið. Atli segir í samtali við Vísi að nefndin hafi lokið umfjöllun um málið laust fyrir klukkan eitt í dag. Nefndarálitum verður dreift á þingfundi í dag.

„Við skiluðum frá okkur þremur nefndarálitum í dag. Einu um skýrsluna þar sem meginatriðið er að fara yfir breytingartillögur sem komu fram við þingsályktun sem fylgir skýrslunni. Svo tvö nefndarálit varðandi þingsályktun um málshöfðun," segir Atli.

Sem fyrr leggja fulltrúar VG, Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar til þess að þau Geir Haarde, Árni Mathiesen, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Björgvin G. Sigurðsson verði ákærð. Fulltrúar Samfylkingarinnar vilja ákæra þrjú fyrrnefnd en ekki Björgvin G. Sigurðsson. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja engan ákæra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×