Innlent

Hafa skilning á nauðsyn samkeppni

Landsbankanum er fullkunnugt um þá viðkvæmu stöðu sem nú er uppi og hefur fullan skilning á nauðsyn samkeppninnar, segir í svari bankans við fyrirspurn Fréttablaðsins. Þar segir að samkeppnisstaðan sé best tryggð með því að tryggja lífvænlegum fyrirtækjum rekstrargrundvöll.

Landsbankinn mun stunda áfram venjulega bankastarfsemi löngu eftir að yfirstandandi erfiðleikum lýkur. Því er það hagur bankans að mörg sterk fyrirtæki séu á markaði. Hagur bankans, fyrirtækjanna, og samfélagsins alls fer saman, segir í svari bankans.

„Það blasir við og óskiljanlegt að nokkur haldi því fram að hagsmunum bankans sé betur þjónað með því að rústa framtíð hugsanlegra, eða jafnvel núverandi, viðskiptavina," segir þar ennfremur.

Bankinn telur alls ekki heppilegast í öllum tilvikum að taka yfir fyrirtæki og halda rekstri þeirra áfram. Mörgum fyrirtækjum hafi þegar verið stefnt í gjaldþrot. Almannahagsmunir krefjist þess þó að lífi sé haldið í fyrirtækjum í góðum rekstri, þó þau séu of skuldsett. Slíkar skuldsetningar tengist oft gengishruni krónunnar.

Landsbankinn telur að samkeppni muni ekki bíða varanlegan skaða af skammvinnu eignarhaldi banka á nokkrum fyrirtækjum. Oftar en ekki mæli samkeppnissjónarmið með því að fyrirtæki séu ekki sett í þrot. - bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×