Innlent

Hnífamaður reyndi að ræna verslun

Gerð var tilraun til vopnaðs ráns í verslun 10-11 í Hafnarfirði í gær. Að sögn lögreglu voru málavextir þeir að seinni partinn í gær gekk ungur maður vopnaður hnífi inn í verslun 10-11 við Melabraut í Hafnarfirði. Hann ógnaði starfsmanni með hnífnum og heimtaði af honum peninga.

Eftir orðasamskipti og átök hljóp maðurinn af vettvangi en við rannsókn lögreglu kom fljótlega í ljós hver árásarmaðurinn er. Hann hefur nú verið handtekinn og játað verknaðinn. Telst málið því upplýst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×