Árásin mikið áfall fyrir DV 3. september 2010 05:00 Tölvuþrjótar réðust á fréttasíðu DV á þriðjudag og þurfti að loka síðunni í kjölfarið. Virðist hafa átt sér upptök á vesturströnd Bandaríkjanna. Áfall fyrir ímynd fyrirtækisins, segir framkvæmdastjóri DV.
Fréttavefur DV varð fyrir árás tölvuhakkara í fyrradag og þurfti að loka síðunni í kjölfarið. Árásin átti sér stað klukkan 17.40 á miðvikudaginn og var síðunni lokað um hádegi í gær. Forsvarsmenn DV benda þeim notendum síðunnar sem hafa farið þar inn á milli klukkan 17.40 á miðvikudeginum til 11.50 í gær að gæta fyllstu varúðarráðstafana og skanna tölvur sínar fyrir vírusum. Veiru var komið fyrir í vefþjóni síðunnar og allt útlit er fyrir að hún eigi sér upptök á vesturströnd Bandaríkjanna. Svo virðist sem töluverðir veikleikar hafi verið í auglýsingakerfi DV.is og nýttu tölvuhakkararnir sér það. Bogi Örn Emilsson, framkvæmdastjóri DV, segir árásina vera mikið áfall fyrir DV og þeirra ímynd. Blaðið sé í harðri samkeppni við önnur fjölmiðlafyrirtæki um veftraffík og hætt sé við að árásin hafi áhrif á það. „En við bindum vonir við það að lesendur DV.is sjái hvað við tókum vel á þessu máli og treysti okkur enn frekar eftir þetta," segir Bogi. Gögn síðunnar frá 1. september eru glötuð en segir Bogi að fyrirtækið hafi ekki orðið fyrir frekara gagnatapi. Hann telur óvíst að þrjótarnir hafi ráðist að DV af öðrum orsökum en þeim að síðan sé ein af þremur mest sóttu síðum landsins og það geri hana sjálfkrafa skotmark fyrir árásir sem þessar. Guðjón Magnússon, sérfræðingur hjá Upplýsingatæknifélaginu, segir tilganginn að ráðast á síður sem séu eins vel sóttar og DV.is, að koma fyrir dulinni óværu sem geri eitthvað af sér. „Tilgangurinn er í mörgum tilvikum sá að ef farið er inn á síðu sem notandi treystir þá er ekki ólíklegt að hann samþykki niðurhal á uppfærslu á hinum ýmsu forritum. Þar dvelur vírusinn og er fyrr en varir kominn út um allt." Guðjón segir öryggisgallann í auglýsingakerfi DV koma sér á óvart og viðgerð á síðunni taki óvenju langan tíma. Hann taldi þó afar ólíklegt að notendur síðunnar hefðu orðið fyrir smiti, þó ekki sé hægt að fullyrða um það. Að sögn framkvæmdastjóra DV benti til þess að síðan kæmist aftur í gagnið um fimmleytið í gærdag, en hún lá enn þá niðri þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira