Alnæmisleikþættir til fræðslu í Malaví 5. október 2010 04:00 Þótt talsverð alvara búi að baki þessum leikþætti hafa áhorfendur af honum gaman. Hann hefur meðal annars það hlutverk að fræða þorpsbúa um smitleiðir alnæmis.Mynd / þórir GUðmundsson
Hjálparstarf Alnæmissmituðum í Malaví hefur fækkað úr 14,4 prósentum landsmanna í tólf prósent frá árinu 2007. „Það er stórkostlegt fyrir okkur að vera partur af því sem er að gerast,“ segir Þórir Ólafsson, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða kross Íslands. Rauði kross Íslands starfar með Rauða krossi Malaví í tveimur héruðum í landinu þar sem hlutfall alnæmissmitaðra er með því hæsta sem gerist. Þar aðstoða samtökin um 3.600 börn sem flest eru munaðarlaus eftir að hafa misst foreldra sína úr alnæmi. „Þá þurfa yfirleitt afi og amma eða aðrir þorpsbúar að ala þau upp og það er gífurlegt álag á fólk sem rétt lifir milli uppskerutímabila. Við höfum meðal annars komið upp athvörfum fyrir þessa krakka þar sem sjálfboðaliðar hugsa um þau og þá fá þau eina máltíð á dag. Fyrir mörg þeirra er þetta eina máltíðin sem þau fá,“ segir Þórir. Liður í forvarnastarfinu er að leiklistarhópar, skipaðir heimamönnum, fara á milli þorpa og setja upp leikþætti þar sem upplýsingum um smitleiðir alnæmis er komið á framfæri. „Það er geysilega skemmtilegt og mikil tilbreyting fyrir fátæka bændur í þorpunum þegar það kemur svona leiklistarhópur og setur upp eins konar Spaugstofuskets sem síðan inniheldur líka skilaboð. Nú vill maður ekkert segja að það sé beint samhengi á milli þess að við höfum verið með þessa fræðslu í tveimur héruðum og það að alnæmissmituðum sé að fækka,“ segir Þórir. Þórir Guðmundsson Þórir segir að heimamönnum sé einnig hjálpað að rækta grænmeti. „Nú er svo komið að fólk kemst á alnæmislyf ef það uppgötvar sjúkdóminn nógu snemma – og það skiptir gífurlegu máli – en hins vegar er aukaverkan lyfjanna sú að menn eru stöðugt svangir. Til þess að þau virki sem skyldi þarf næringarástand líkamans líka að vera gott,“ segir Þórir. Fólk sé því kynnt fyrir nýjum ræktunaraðferðum, meðal annars í þeirri von að sú þekking berist víðar. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira