Ekki eins og að fara í sturtu 22. janúar 2010 06:00 Reiði, Ótti og Ringulreið Jón Atli Jónasson og félagar taka á ástandinu í Góðir Íslendingar.Mynd/Grímur Bjarnason
Góðir Íslendingar eftir þá Jón Pál Eyjólfsson, Hall Ingólfsson og Jón Atla Jónasson verður frumsýnt í kvöld. Verkið tekur upp þráðinn þar sem Þú ert hér hætti. „Það sem við gerum í leikhópnum er að fjalla um íslenskt samfélag á hverjum tíma og við reynum að vera eins nálægt kvikunni og við getum," segir Jón Atli Jónasson, sem skrifar Góðir Íslendingar ásamt Jóni Páli Eyjólfssyni og Halli Ingólfssyni. Verkið verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Þremenningarnir skrifuðu og léku í sýningunni Þú ert hér, sem hlaut mikið lof og athygli í fyrra og þótti vera hárfín krufning á ástandi þjóðfélagsins eftir hrun. Í Góðum Íslendingum er haldið áfram á sömu braut, en þessi sýning er mannfrekari því fimm leikarar taka þátt í sýningunni auk þremenninganna. „Við tökum á ástandinu sem manni finnst ríkja í dag," segir Jón. „Það er rosaleg reiði, gremja, ótti og ringulreið. Nú er ekki talað um annað en hvort við eigum að samþykkja Icesave-samninginn eða ekki. Undirliggjandi er þó miklu stærri samningur sem við höfum ekki formað og hvað þá undirritað. Það er samningurinn um það hvers konar þjóð við ætlum að vera." Jón Atli segir að fólk ætti að koma á sýninguna af því það sér sjálft sig í verkinu og fólkið í kringum sig. „Þessi tilraunastofa okkur birtir kannski ekki neina lausn út úr vandanum, en hún sýnir vonandi hvar við erum og stingur inn hjá fólki hugmyndum um það hvert við gætum farið." Viðbrögð áhorfenda við Þú ert hér voru mjög mismunandi og Jón Atli á von á að það verði líka persónubundið hvernig fólk upplifi nýja verkið. „Okkar tilgangur hefur aldrei verið að vera einhverjir skemmtikraftar," segir hann. „Það kom okkur mest á óvart hvað fólk hló mikið á Þú ert hér. Öðrum stökk reyndar ekki bros. Við erum ekki að gera farsa. Ég vil ekki að fólk komi á sýningu og hugsi ó, hvað við Íslendingar erum fokkt og fari svo bara heim og panti sér pitsu. Maður vill breyta skynjun áhorfandans og vonar að sýningin setji í gang eitthvað hjá honum. Sýningin á ekki að vera eins og að fara í sturtu." drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Bob Mackie er látinn Lífið Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Lífið samstarf Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira