Innlent

Matarfíklar hittast í Keflavík

Ráðstefna matarfíkla verður haldinn í Keflavík.
Ráðstefna matarfíkla verður haldinn í Keflavík.

Alþjóðleg ráðstefna OA samtakanna, Overeaters anonymous, verður haldin í Myllubakkaskóla, Keflavík, dagana 22. - 24. október næstkomandi.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að matarfíkn geti verið stórt vandamál í lífi fólks. OA samtökin bjóða upp á aðstoð við þessu vandamáli sem byggir á 12 spora kerfi AA samtakanna.

OA félagar eru karlar og konur á öllum aldri um allan heim sem eiga sér þá ósk að halda sér frá matarfíkn og vilja bera boðskap samtakanna um bata áfram til þeirra sem enn þjást af matarfíkn.

Ráðstefnan á erindi til allra sem telja sig eiga í vandræðum með mat.

Nánari upplýsingar er að finna á www.oa.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×