Telur niðurfærslu skulda mögulega Sigríður Mogensen skrifar 10. október 2010 12:17 Ögmundur Jónasson.
Dómsmálaráðherra segist hafa efasemdir um að almenn niðurfærsla skulda væri of þungbær fyrir ríkissjóð. Skoða þurfi málið í víðara samhengi. Forsætisráðherra segir að efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gæti þurft að taka breytingum verði ráðist í slíka aðgerð. Forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra funduðu með embættismönnum í gær um mögulegar lausnir á skuldavanda heimilanna. Meðal þess sem stjórnvöld kanna nú, er hvort hægt sé að ráðast í almenna skuldaniðurfærslu, í anda þess sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa talað fyrir. Við spurðum forsætisráðherra eftir fundinn hvort þessi mál hafi verið rædd við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn: „Fjármálaráðherra er nú staddur úti og ég er viss um að þessi mál koma upp þar. Við erum bara að skoða hvað er nauðsynlegt að gera hér fyrir heimili í skuldavanda," sagði Jóhanna. Jóhanna segir að ef í ljós komi að hægt sé að fara í almenna skuldaniðurfellingu og það sé nauðsynlegt verði það gert. Hún ítrekar að stjórnvöld ráði ferðinni. „Við myndum þá skoða með AGS hvort efnahagsprógrammið þyrfti að taka lengri tíma, til dæmis ef við erum að fara of hratt í niðurskurðinn eða ef við þurfum að gera meira fyrir heimilin en við töldum hingað til," segir hún. Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, segist hafa efasemdir um þau rök að almenn skuldaniðurfærsla yrði of þungbær fyrir ríkissjóð: „Ég hef leyft mér að hafa efasemdir um þær stærðir sem hafa verið nefndar. Að skoða málið út frá frosinni stöðu. Við erum með kerfi á hreyfingu, það á við um lífeyrissjóði, bankana og fleira. Ef við gerum ekki neitt og ef ekkert hefði verið gert. Ef greiðsluaðlögun og fleiri úrræði hefði ekki komið til sögunnar væru fleiri komnir í þrot. Hvað hefði það þýtt í tapi fyrir fjármálafyrirtækin? þannig að við þurfum að reikna þetta út með tilliti til kerfis sem er að taka stöðugum breytingum þar sem ein ákvörðun hefur áhrif á aðrar," segir Ögmundur. Nú er í gangi efnahagsprógramm með AGS. Sérfræðingar hans hafa lagst alfarið gegn almennri skuldaniðurfærslu. Hvaða áhrif heldurðu að slík aðgerð myndi hafa á samstarfið við sjóðinn? „Ég held að menn þar á bæ myndu vera opnir fyrir skynsamlegum rökum, og við erum að reyna að ná samkomulagi um þessi mál innan okkar þjóðfélags og það er það sem máli skiptir," segir Ögmundur að lokum.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira