Flókið púsluspil Magnúsar Geirs 22. apríl 2010 04:00 Magnús Geir segir Faust-ferðina til London flækja púsluspilið, en þetta sé bara fórnarkostnaður sem hann borgar með glöðu geði. Fréttablaðið/GVA „
Þetta flækir auðvitað púsluspilið en þessi ferð kemur ekkert eins og þruma úr heiðskíru lofti, við erum búin að vita í þónokkurn tíma að þetta gæti komið upp á,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá verður uppfærsla Vesturports og Borgarleikhússins á Faust afmælissýning hins virta Young Vic-leikhúss í haust. Hátt í 25 manna hópur fer út til að undirbúa sýninguna og koma upp sviðinu en fjórtán manna hópur verður síðan í London í sex vikur á meðan verkið er sýnt. Í þeim hópi eru margar af helstu kanónum Borgarleikhússins, Unnur Ösp, Hilmir Snær Guðnason, Rúnar Freyr Gíslason, Þorsteinn Gunnarsson og svo Björn Hlynur Haraldsson auk Gísla Arnar og Nínu Daggar Filippusdóttur, að ógleymdum Víkingi Kristjánssyni. Magnús segir að þessi viðurkenning vegi töluvert þyngra en svo að mönnum fallist hendur yfir því að skipuleggja næsta leikár. „Maður er bara með ákveðin plön í gangi sem hægt er að grípa til þegar eitthvað svona kemur upp á. Og það er bara gott að það skuli vera komin niðurstaða í þessu því þá veit maður að þessir leikarar verða frá í einhvern ákveðinn tíma og getur skipulagt sig í kringum það. Þetta er því engin katastrófa.“ Magnús Geir er nú á fullu við að setja saman næstu misseri og var því í London þegar Fréttablaðið náði tali af honum en þar hugðist hann skoða nokkrar leiksýningar og sitja á ráðstefnu um leikhús.- fgg
Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fleiri fréttir „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Sjá meira