Valin til að sýna hönnun á tískuvikunni í London 21. janúar 2010 05:00 Vera Þórðardóttir hönnunarnemi „
Þetta er mjög spennandi, ég fæ eiginlega í magann þegar ég hugsa um þetta," segir hönnunarneminn Vera Þórðardóttir. Vera er ein af 14 hönnunarnemum á Englandi sem voru valdir úr hópi 100 nemenda í úrslit FAD-keppninnar. Sigurvegarinn verður tilkynntur á sýningu á tískuvikunni í London 22. febrúar. Blaðamenn frá Vogue og fleiri tískutímaritum hafa boðað komu sína á sýninguna ásamt útsendurum frá tískuhúsum og verslunarkeðjum á borð við Selfridges. „Allir sem eru að leita að ungum og hæfileikaríkum hönnuðum mæta," segir Vera og bætir við að samkeppnin sé hörð, en keppinautar hennar eru úr mörgum af stærstu hönnunarskólum Englands. Vera er 24 ára gömul og stundar nám í Instituto Marangoni í London. Skólinn er einn sá virtasti á sínu sviði á Ítalíu, en er einnig með aðsetur í París og London. Hún flutti til London árið 2007 eftir að hún útskrifaðist úr Verslunarskóla Íslands tveimur árum áður. Aðspurð hvernig hún meti sigurlíkurnar segist hún vera bjartsýn. „Þetta eru allt mjög hæfileikaríkir krakkar í keppninni, en það væri gaman að vinna og koma með smá jákvæða íslenska umfjöllun til Englands," segir Vera í léttum dúr. Nemendunum var gert að byggja keppnishönnunina á minningu. Vera sótti meðal annars innblástur í snjóflóð sem féll vestur á Núpi í Dýrafirði árið 1995 og skall á mannlausu húsi sem var í eigu fjölskyldu hennar. „Það eru mikil snjóáhrif í hönnuninni og ég þróaði sjálf textíl sem er búinn til úr sílikoni og Swarovski-kristöllum. Swarovski styrkti mig sem var mjög ánægjulegt. Ég fæ kristallana frá þeim," segir hún. Sigurvegari keppninnar fær 2.000 pund, eða um 400.000 krónur, í verðlaunafé, ásamt lærlingasamningi við tískuhús í London. 1.000 punda verðlaun og lærlingasamningur fást fyrir annað og þriðja sæti. Í dómnefndinni sitja á meðal annarra breski rithöfundurinn Linda Grant og tískusýningarstjórinn Sonnet Stanfill, sem hefur unnið með Bítlabarninu Stellu McCartney og hönnuðinum Christian Lacroix. atlifannar@frettabladid.is Vera þórðardóttir hönnun sda as ads
Mest lesið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Sjá meira