Innlent

Skuldavandi heimila verði strax settur á dagskrá

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólöf Nordal vill að skuldavandi heimila verði tafarlaust ræddur á Alþingi.
Ólöf Nordal vill að skuldavandi heimila verði tafarlaust ræddur á Alþingi.
Aldrei hef ég orðið vitni að slíkum mótmælum og fóru fram í gærkvöldi, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, við upphaf þingfundar í dag. Hún sagði að þúsundir manna sem væru að missa lífsviðurværi sitt hefðu mótmælt á Austurvelli í gær. Við þessu yrði að bregðast strax og taka tafarlaust á dagskrá Alþingis umræður um skuldavanda heimilanna.

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, tók undir með varaformanni Sjálfstæðisflokksins. „Ég tek undir það með háttvirtum þingmanni, Ólöfu Nordal, að það verði fundinn staður fyrir það í dagskrá Alþingis og þessi mál verði rædd hér," sagði Róbert.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, Höskuldur Þórhallsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Unnur Brá Konráðsdóttir tóku öll undir þessi orð. Það gerði fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, líka. Hann færði jafnframt lögreglunni þakkir fyrir það hversu vel hún leysti störf sín að hendi þegar mótmælin fóru fram í gærkvöldi.

Tveir menn voru mættir til mótmælanna. Mynd/ Vilhelm.
Aftur var boðað til mótmæla sem áttu að hefjast við upphaf þingfundar í dag en ljósmyndari Fréttablaðsins sem var á vettvangi sagði að fáir væru mættir þegar að hann kannaði málið rétt fyrir klukkan tvö. Raunar sá hann bara þessa tvo menn á Austurvelli sem sjást á myndinni hér til hliðar.

Búast má við að það fjölgi í hópnum enda höfðu á annað hundrað manns boðað sig til mótmælanna á samskiptasíðunni Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×