Innlent

Aðeins tíu börn á biðlistum

Aðgerðir til að tryggja sem flestum börnum vist á frístundaheimilum hafa skilað árangri. Fréttablaðið/Stefán
Aðgerðir til að tryggja sem flestum börnum vist á frístundaheimilum hafa skilað árangri. Fréttablaðið/Stefán
Aldrei fyrr hafa jafn margir sótt um frístundaheimilisvist fyrir grunnskólabörn hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkur (ÍTR). Í lok september voru tæplega 3.200 börn skráð miðað við 2.850 á sama tíma í fyrra.

Fram kemur í tilkynningu frá ÍTR að ötullega hafi verið unnið að því að tryggja börnunum vistun og séu nú aðeins tíu börn á biðlista. Sótt var um vistun barnanna eftir að skóli hófst. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×