Innlent

Yfir 40% Íslendinga ánægð með störf Jóns Gnarr

Boði Logason skrifar
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
Rúmlega 40% Íslendinga eru ánægð með störf Jóns Gnarr sem borgarstjóra í Reykjavík, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Þetta kom fram í útvarpsfréttum RÚV.

Ríflega 42% eru hvorki ánægðir né óánægðir en tæplega 17% eru óángæð með störf borgarstjóra.

Þá eru fleiri karlar óánægðir með störf Jóns en konur. Í könnuninni kemur einnig fram að fleiri íbúar höfuðborgarsvæðisins eru óánægðir með störfin en íbúar landsbyggðarinnar. Yngra fólk er ánægðra með störf Jóns en þeir sem eldri eru og þeir sem styðja ríkisstjórnina eru ánægðir en þeir sem styðja hana ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×