Eignir Landsbanka að fullu uppi í Icesave skuldir Heimir Már Pétursson skrifar 11. febrúar 2010 18:30
Íslendingar munu krefjast þess að Icesave skuldbinding Íslands njóti forgangs við greiðslur úr þrotabúi gamla Landsbankans en eignir þess gætu dugað til að standa undir hlut Íslands. Þá verði engir vextir greiddir vegna skuldbindingarinnar. Kristrún Heimisdóttir fyrrverandi aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þáverandi utanríkisráðherra sagði í Fréttablaðinu um helgina að svo virðist sem núverandi ríkisstjórn hafi tekið Icesave málið út úr hinum pólitíska farvegi sem Brussel viðmiðin fólu í sér. Formaður Framsóknarflokksins tekur undir þetta. „En núna vorum við að reyna að færa umræðuna frá því sem hefur gerst að framtíðinni," segir Sigmundur Davíð. Allir flokkar hafi verið farnir að ná saman um það. Þess vegna hafi innlegg Indriða verið mjög óheppilegt. „Þar sem hann vegur eina ferðina enn að stöðu Íslands í málinu." Sigmundur segir að vonandi komist málið aftur í pólitískan farveg með sameiginlegri aðkomu stjórnar og stjórnarandstöðu. Í núgildandi Icesave lögum er gert ráð fyrir að eignir þrotabús gamla Landsbankans skiptist milli Íslands, Bretlands og Hollands frá fyrstu krónu. Skuldbinding Íslands vegna lágmarks innistæðna er metin á um 700 milljarða sem síðan bætast á 5,55 prósenta vextir. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar mun ný samninganefnd krefjast þess að skuldbinding Íslands njóti forgangs þegar kemur að eignum bankans, sem almennt eru taldar verða yfir 1.000 milljarðar. Þá verði engir vextir greiddir af skuldbindingunni. Formaður Framsóknarflokksins vill ekki staðfesta þetta en er bjartsýnn á að samningaviðræður geti hafist í fljótlega. „Ef ríkisstjórninni er alvara með það sem hún hefur sagt í málinu að undanförnu. Þá getum við byrjað mjög fljótt en ómögulegt er að segja til um hversu langan tíma viðræðurnar sjálfar taka," segir Sigmundur Davíð. Jafnvel þótt Alþingi næði að samþiggja nýjan Icesave samning og afnema fyrri lög, séu menn ekki á einu máli um hvort við hæfi sé að blása þjóðaratkvæðagreiðsluna af. Sumir telji hana réttu leiðina til að fella lögin úr gildi. „Enda sé forsetinn búinn að vísa málinu í þann farveg. Þannig að það er eitthvað sem menn verða að meta," segir Sigmundur. En áfram sé gert ráð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni, þótt Alþingi geti að sjálfsögðu breytt lögum sem það hefur sett.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Sjá meira