Innlent

Tíðindalítið á gosstöðvunum

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ekkert hefur sést til gosstöðvanna á Eyjafjallajökli í dag. Af og til mælast stöku litlir skjálftar undir og við toppgíginn og eru þeir yfirleitt grunnir, að því er kemur fram í skýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans.

Á mánudagskvöld hækkaði órói lítillega aftur. Þá sást einnig hærri gufubólstur. Bólsturinn var hvítur og líklega lítið eða ekkert um ösku í honum, að mati vísindamanna. Síðan hefur verið tíðindalítið á gosstöðvunum. Haldið verður áfram að fylgjast grannt með eldstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×