Michael Madsen er rödd Egils Skallagrímssonar 19. janúar 2010 06:00 MR. Skallagrímsson <B>Benedikt Erlingssyni</B> líst ágætlega á <B>Michael Madsen</B> í hlutverk Egils Skallagrímssonar en sjálfur lék hann auðvitað kappann í leikverkinu Mr. Skallagrímsson. „Ég hitti þessa stráka nokkrum sinnum, við ræddum heilmikið saman og skoðuðum söguslóðir í Borgarfirðinum. Þeir tóku þar myndir sem þeir ætla að nota í teiknimyndinni,“ útskýrir Benedikt en bróðir hans, Friðrik, kom að gerð handritsins. „Þeir höfðu miklar áhyggjur af því að hafa sögulegar staðreyndir ekki á hreinu og vildu alls ekki móðga Íslendinga,“ útskýrir Benedikt sem hefur þegar séð smá brot úr myndinni og líst alveg ótrúlega vel á.
Hollywood-leikarinn Michael Madsen talar fyrir Egil Skallagrímsson í nýrri teiknimynd sem íslenska fyrirtækið Caoz framleiðir í samstarfi við ungverska kvikmyndagerðarmenn. Arnar Þórisson hjá Caoz segir að aðkoma þeirra að myndinni sé að sjá um tónlistina og þá komu þeir einnig að handritsgerðinni. „Ég kynntist leikstjóranum Aroni Gauder á ráðstefnu fyrir nokkrum árum. Og þegar hann hafði samband við mig um gerð þessarar myndar og vildi athuga hvort við værum spenntir fyrir samstarfi þá gátum við ekki sagt nei; það er ekki hægt að gera mynd um Egil án þess að Íslendingar komi þar nærri," segir Arnar en aðstandendur myndarinnar hafa komið nokkrum sinnum til Íslands, verið á söguslóðum Egils í Borgarfirði og lesið Egilssögu fram og til baka. Aron þessi sló eftirminnilega í gegn með fyrstu teiknimyndinni sinni Nyócker! fyrir sex árum og var strax harðákveðinn í því að láta Egilssögu verða sitt næsta verkefni. Arnar lýsir myndinni sem fullorðinslegri teiknimynd enda vart annað hægt; saga Egils er nokkuð blóði drifin, svo vægt sé til orða tekið. Búið er að taka upp leikrödd Madsen og Arnar segir það hafa komið sér á óvart hversu vel leikarinn náði að túlka íslenska víkinginn. „Hann bað mig reyndar um að fara með Höfuðlausn á íslensku fyrir sig, svona til að fá „fílinginn" fyrir því hvernig það hljómaði á íslensku," útskýrir Arnar en bætir við að enn eigi eftir að fullklára fjármögnun myndarinnar. Hann er þó bjartsýnn á að það eigi eftir að ganga eftir. Madsen ætti að vera kvikmyndaáhugamönnum að góðu kunnur. Hann lék Mr. Blonde í hinni stórgóðu kvikmynd Quentins Tarantino, Resevoir Dogs, og þá birtist hann Íslendingum í Kill Bill 2 með íslenskt brennivín upp á arminn. Madsen er þekktur fyrir að leika hálfgerða hrotta á hvíta tjaldinu en færri vita eflaust að hann er liðtækur ljósmyndari og þykir ansi lunkið ljóðskáld. Hann hefur fengið ljóðabækur sínar útgefnar um allan heim, rétt eins og Egill. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Britney farin í meðferð Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira