Skilur viðbrögð almennings Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. október 2010 21:31 Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir að vinnan við fjárlagafrumvarpið sé rétt að hefjast. Mynd/ Stefán. „
Vinnan er rétt að hefjast en sjokkið er komið hjá þeim sem hafa fengið kynningu á því hvernig frumvarpið stendur," segir Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. Borgarafundir hafa verið haldnir víða á landinu í kvöld og framhald verður á næstu daga. Menn mótmæla meðal annars niðurskurði sem bitnar víða á heilbrigðisþjónustu. Þuríður segist ekki hafa komist á þá fundi sem haldnir voru í kvöld því að hún hafi verið bundin við fundarhöld á höfuðborgarsvæðinu. „Ég skil mjög vel að starfsmenn viðkomandi stofnana, aðstandendur og sveitarstjórnarmenn í viðkomandi sveitarfélögum séu að halda fundi og fara yfir málin," segir Þuríður. Nokkur svæði komi mjög illa út úr frumvarpinu, þar sem áætlaður sé niðurskurður og breytingar á rekstri langt umfram það sem hafði verið vænst. Farið hafi verið yfir málið á fundi heilbrigðisnefndar í morgun. Þar hafi ráðherra og starfsfólki ráðuneytisins gefist kostur á að fara yfir forsendurnar á þeim breytingum sem felast í frumvarpinu eins og það liggur fyrir núna. Þuríður leggur áherslu á að myndin sé ef til vill ekki nægjanlega skýr eins og hún blasir við í fjárlagafrumvarpinu núna. Enn eigi eftir að sjá hvort samþætting málaflokka sem heyra undir félagsmála- og heilbrigðisráðuneytinu hafi áhrif á gang mála. Stefnt er að því að ráðuneytin sameinist um áramótin. Þuríður segir að fundað verði í fjárlaganefnd á morgun. Þá gefist sveitastjórnarmönnum kostur á að mæta fyrir nefndina og ræða þessi mál. Þuríður segir að það þurfi að fara betur yfir þær forsendur sem liggja að baki fjárlagafrumvarpinu. Hvort rekstrarstaða ríkissjóðs verði betri en spár gerðu ráð fyrir.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira