Innlent

Skilur viðbrögð almennings

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir að vinnan við fjárlagafrumvarpið sé rétt að hefjast. Mynd/ Stefán.
Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir að vinnan við fjárlagafrumvarpið sé rétt að hefjast. Mynd/ Stefán.
„Vinnan er rétt að hefjast en sjokkið er komið hjá þeim sem hafa fengið kynningu á því hvernig frumvarpið stendur," segir Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. Borgarafundir hafa verið haldnir víða á landinu í kvöld og framhald verður á næstu daga. Menn mótmæla meðal annars niðurskurði sem bitnar víða á heilbrigðisþjónustu. Þuríður segist ekki hafa komist á þá fundi sem haldnir voru í kvöld því að hún hafi verið bundin við fundarhöld á höfuðborgarsvæðinu.

„Ég skil mjög vel að starfsmenn viðkomandi stofnana, aðstandendur og sveitarstjórnarmenn í viðkomandi sveitarfélögum séu að halda fundi og fara yfir málin," segir Þuríður. Nokkur svæði komi mjög illa út úr frumvarpinu, þar sem áætlaður sé niðurskurður og breytingar á rekstri langt umfram það sem hafði verið vænst. Farið hafi verið yfir málið á fundi heilbrigðisnefndar í morgun. Þar hafi ráðherra og starfsfólki ráðuneytisins gefist kostur á að fara yfir forsendurnar á þeim breytingum sem felast í frumvarpinu eins og það liggur fyrir núna.

Þuríður leggur áherslu á að myndin sé ef til vill ekki nægjanlega skýr eins og hún blasir við í fjárlagafrumvarpinu núna. Enn eigi eftir að sjá hvort samþætting málaflokka sem heyra undir félagsmála- og heilbrigðisráðuneytinu hafi áhrif á gang mála. Stefnt er að því að ráðuneytin sameinist um áramótin.

Þuríður segir að fundað verði í fjárlaganefnd á morgun. Þá gefist sveitastjórnarmönnum kostur á að mæta fyrir nefndina og ræða þessi mál. Þuríður segir að það þurfi að fara betur yfir þær forsendur sem liggja að baki fjárlagafrumvarpinu. Hvort rekstrarstaða ríkissjóðs verði betri en spár gerðu ráð fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×