Lífið

Sefur ekki hjá á fyrsta stefnumóti

Paris Hilton. MYND/Cover Media
Paris Hilton. MYND/Cover Media

Paris Hilton, sem hefur átt í þó nokkuð mörgum ástarsamböndum í gegnum tíðina, segir reynslu sína af stefnumótum við karlmenn vera erfiða.

„Nánast allir karlmenn sem ég hef hitt í gegnum tíðina vildu nota mig af því að ég á pening og er fræg. Í flestum tilfellum vildu þeir stunda kynlíf með mér og þess vegna hef ég það fyrir reglu að sofa ekki hjá á fyrsta stefnumóti. Aldrei!" sagði Paris.

Við gerðum könnun á síðunni okkar á Facebook þar sem við spurðum: Hvað skal varast á fyrsta stefnumóti?

„Tala ekki of mikið um sjálfa sig, hlusta líka. Vera hrein og snyrtilega vel til höfð, alls ekki tala um fyrri sambönd á fyrsta deiti."

„Ekki sofa hjá vil ég bæta við."

„Og ekki segja já við öllu þótt þú meinir nei ef þú ert spurð að einhverju. Hafðu þínar eigin skoðanir, það má alveg líka vera ósammála um ýmsa hluti, áhugamálin mega líka alveg vera ólík."

„Ekki sofa hjá, einhverstaðar las ég það, að það ætti ekki að gerast fyrr en á þriðja deiti. Kynnumst fyrst, sjáum hvort hinn aðilinn heilli til þess og vekjum eftirvæntingu, leyfum okkur að hafa smá spennu í þessu."

„Það er svo erfitt nefnilega að reyna að vera einhver önnur en þú ert og svo ef maður verður lengur með viðkomandi þá þarf maður að „breyta" sér yfir í sig sjálfa.. skiljiði? Ekki cool!"

„... svo held ég að það sé um að gera að láta vita eða gefa í skyn hvort maður vilji second date eða ekki, hvort það sé áhugi eða not.. ekki draga viðkomandi í gegnum moldina og sandinn ef þú ætlar síðan ekki að tala við viðkomandi aftur! ef þú ert á versta fyrsta deiti ever, mundu þá að deitið þitt gæti verið á sínu besta! and vice versa!"

Þökkum ykkur kærlega fyrir þátttökuna stelpur. Vertu líka með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.