Innlent

Óveður á Reykjanesbrautinni

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Vegfarendur eru varaði við miklu hvassviðri á Suðurlandi, undir Eyjafjöllum, Hafnarfjalli, Kjalanesi og á Reykjanesbraut.

Á Suðurlandi, Vesturlandi og á Norðurlandi eru vegir auðir.

Á Vestfjörðum er flughált á Hrafnseyrarheiði, hálka á Steingrímsfjarðarheiði en hálkublettir um Þröskulda, á Dynjandisheiði , Mikladal og Hálfdán.

Aðalleiðir eru auðar á Norðausturlandi allt austur fyrir Mývatn en hálkublettir er yfir Mývatnsöræfi og hálka á Möðrudalsöræfum.

Á Austurlandi eru hálkublettir á Vopnafjarðarheiði og hálka á Fjarðarheiði en aðrar leiðir greiðfærar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×