Innlent

Allt að 1100 nýjar bækur seldar fyrir jólin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bryndís Loftsdóttir er bóksali í Eymundsson.
Bryndís Loftsdóttir er bóksali í Eymundsson.
Á bilinu 900-1100 íslenskir bókatitlar eru seldir í Eymundsson á hverju ári, segir Bryndís Loftsdóttir bóksali. Hún segir að mikil aukning sé í útgáfu á barnabókum í ár. Að öðru leyti sé markaðurinn líkur því sem að hann hefur verið á fyrri árum. „Það eru öll teikn á lofti um að þetta verði ósköp svipað," sagði Bryndís í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Ný bók kemur út eftir Arnald Indriðason þann 1. nóvember næstkomandi, venju samkvæmt. „Nú á víst Erlendur sjálfur að birtast aftur í bók Arnaldar," segir Bryndís og bætir við að nú verði útskýrt hvers vegna hann var ekki til staðar í síðustu bókum. Bók Arnaldar, sem kemur út fyrir þessi jól, heitir Furðustrandir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×