BHM mótmælir skerðingu fæðingarorlofs 5. október 2010 08:31 Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM
BHM mun ekki taka þátt í framlengingu stöðugleikasáttmála á grundvelli boðaðrar láglaunastefnu eins og hún birtist í fjárlagafrumvarpi ársins 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem afstaða þess til mála er varða kjör háskólamanna á vinnumarkaði er ítrekuð. Félagið mótmælir því ennfremur að gengið verði á réttindi til fæðingarorlofs, enda sé slíkt aðför að jafnrétti kynjanna og andstætt ákvæðum laga um fæðingarorlof. BHM krefst kjaraleiðréttingar til handa félagsmönnum sínum hjá hinu opinbera, sem verið hafa samningslausir í hálft annað ár. Félagið krefst þess að lokið verði við óuppfyllt ákvæði frá fyrri kjarasamningum um fyrirkomulag sí- og endurmenntunar. BHM ætlast til þess að ákvæði stöðugleikasáttmála um starfsendurhæfingarsjóð verði uppfyllt. Félagið krefst þess að markvisst verði unnið að því að háskólamenntun sé metin til launa og að tafarlaust verði bundinn endi á verðfellingu menntunar á vinnumarkaði. BHM ítrekar þá afstöðu sína að taka þarf tillit til námslána við umfjöllun um skuldabyrði heimila í landinu. Ennfremur ætlast félagið til að staðinn verði vörður um menntun og fagmennsku í þeim niðurskurði sem boðaður er hjá hinu opinbera. Stjórn BHM ítrekar að laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna verða ekki ákveðin með öðrum hætti en kjarasamningsviðræðum við hlutaðeigandi stéttarfélög. BHM gaf stjórnvöldum með aðild sinni að stöðugleikasáttmála tóm til að hefja endurskipulagningu opinberrar þjónustu og endurreisn atvinnulífsins. Það tóm hefur ekki verið nýtt. Framlag BHM á þeim tíma var m.a. að slá launakröfum á frest, en svar stjórnvalda hefur falist í beinum launalækkunum og hækkunum gjalda til þessa hóps millitekjufólks. Laun félagsmanna BHM jafnt á opinberum sem almennum markaði lágu óbætt hjá garði síðastliðið sumar, þegar launamenn á vinnumarkaði fengu almennt 2,5% hækkun. Stjórn BHM ítrekar því andstöðu bandalagsins við frekari frystingu launa félagsmanna sinna, enda ótækt að hlíta þeim áætlunum fjárlagafrumvarpsins að háskólamenn sæti launafrystingu til fimm ára auk allra þeirra skattahækkana og tekjutenginga sem lagðar eru til eða þegar fram komnar. Fyrirliggjandi frumvarp til fjárlaga ber með sér vanvirðingu fyrir menntun á vinnumarkaði og er alvarleg árás á millitekjuhópa og sér í lagi ungt langskólagengið fólk. Stjórn BHM þykir lítt traustvekjandi að frumvarpið skuli ekki vera byggt á nýrri talnagrunni en raun ber vitni. Að lokum beinir stjórn BHM þeirri kröfu til alþingismanna að þeir sýni þjóðinni þá virðingu að láta af innbyrðis átökum og einhendi sér allir sem einn í að leysa úr brýnum þjóðfélagsmálum
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira