Þingmenn bera persónulega ábyrgð á uppsögnunum á RÚV 5. febrúar 2010 12:14 Mynd/Pjetur
Starfsmenn Ríkisútvarpsins harma þá ákvörðun Alþingis og ríkisstjórnarinnar að skera framlög til RÚV niður um einn tíunda. „Þessi ákvörðun hefur leitt til þess að um fimmtíu starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa nú misst vinnuna, bæði fastir starfsmenn og verktakar, í höfuðborginni og á landsbyggðinni. Sérhver alþingismaður ber persónulega ábyrgð á uppsögnunum," segir í yfirlýsingu sem starfsfólk Ríkisútvarpsins samþykkti nýverið. Þar segir að fáir opinberir starfsmenn hafi orðið jafn illa fyrir niðurskurðarhnífnum síðustu misseri og starfsmenn Ríkisútvarpsins. Þetta sé þriðja uppsagnahrinan á RÚV á stuttum tíma. Að auki hafi starfsmenn stofnunarinnar þurft að sætta sig við launaskerðingu í fyrra fyrstir opinberra starfsmanna. „Geta Ríkisútvarpsins til að uppfylla lýðræðis- og menningarhlutverk sitt er í hættu. Álagið á starfsfólk hefur aukist meira en góðu hófi gegnir, sem hlýtur að koma niður á gæðum dagskrárinnar," segir í yfirlýsingunni. Ábyrgðin hvíli algerlega á herðum ríkisstjórnarinnar og Alþingis, sem hefur nú opinberað virðingarleysi sitt fyrir Ríkisútvarpinu, hlutverki þess, starfsfólki og eigendum, að mati starfsmanna stofnunarinnar. „Starfsmenn Ríkisútvarpsins skora á Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra og handhafa eina hlutabréfsins í Ríkisútvarpinu ohf, aðra ráðherra og alþingismenn að vakna upp af Þyrnirósardoðanum og koma RÚV til varnar."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira